Top Social

sumarblogg

July 12, 2013
jæja það fer lítið fyrir sól og hita þetta sumarið hér hjá okkur,
ég vil nú samt sem áður minna á link partýið hér á blogginu þar sem áskorunin er að gera sumarbloggpóst og deila með okkur.

Ég vona að einhverjir duglegir bloggarar fari nú að geta bloggað um sumar, sól og notalegheit. 
Sólin lætur amk sjá sig inn á milli skúra hér hjá okkur og mér skilst hún láti sjá sig með hita og blíðu annarstaðar á landinu þessa dagana. 
Til hamingju með það, þið sem njótið góðs af :)

Ég á til myndir sem ég tók fyrir tveimur vikum síðan, þegar við áttum virkilega heitann og góðann dag hér á pallinum hjá mér
og ætla að taka ykkur með mér í smá skoðunarferð um útisvæðið hér heima.

Við byrjum uppi á stigapalli, 
þar sem ég sé yfir allann pallinn og get spjallað við nágrannana yfir háann skjólvegginn,
 en svalahurðin er út af efri hæðinni.......
 og svo eru tröppur niður á pallinn
Þarna við kofavegginn getum við sest út og notið morgunsólarinnar,
þarna vorum við búin að sitja með kaffi og bók allann morguninn og skuggin að læðast yfir þetta svæði enda myndin tekin um hádegi...
og sólin á þessum tíma er alveg að ná að bekknum sem ég er með upp við bílskúrsvegginn.
í millitíðinni er ljúft og gott að sitja í gömlum stól sem er við stigann, en fékk ekki að vera með í þessari myndasyrpu.
Logi minn finnur þó alltaf skugga einhverstaðar og forðar sér úr sólinni, annað en húsmóðirinn sem eltir þessa gulu eins og vitleysingur um allann pall með púðana og kaffibollann ;)

Þetta er bekkurinn minn, sem ég get notað sem sófa og......

snúið að sólinni og notað sem sólbekk,

og vá hann var sko alveg að virka þennann daginn!

Svo þegar líður á daginn er oft orðið virkilega hlítt og gott úti á bletti og gott að setjast á bekkinn hinum megin við kofann minn góða


þarna er ég með smá garðyrkjuaðstöðu, en ég hef aðeins verið að reyna að koma garðinum í samt lag, langar í virkilega gróinn og fallegann garð... vantar bara pínu uppá þekkinguna og dugnaðinn hjá konunni. 
En það kemur allt

Við kofadyrnar setti ég niður nokkur sumarblóm,
 svo þar er bleikt og blómlegt á að líta í dag

og svo er ég með sólina seinnipartinn og á kvöldin þarna á tröpunum og á svölum sem ég á nú alveg eftir að gera kósý og fínar í sumar.

Vonandi á ég nú eftir að nota aðstöðuna mína aðeins meira i sumar.
En ég kvet ykkur til að taka áskoruninn og vera með í bloggpartýinu okkar



8 comments on "sumarblogg"
  1. Mikið óskaplega er þetta notalegt hjá þér :)Og fallegt !!

    ReplyDelete
    Replies
    1. This comment has been removed by the author.

      Delete
    2. takk fyrir það og takk fyrir að kíkja við :)

      Delete
  2. flottar sumarmyndir. Sé að það er kominn ljós blær á útihúsgögnin. Hvað settir þú á þau? Eitthvað hvíttunarefni kannski?

    ReplyDelete
    Replies
    1. já sæl og takk innilega fyrir að líta inn.
      ég pússaði húsgögnin og bar svo ljósgráa pallaolíu á þau (frá flugger). Svo þau eru vel varin en líta út fyrir að vera gömul og veðruð, gerðum það sama við gólffjalirnar á pallinum. Er mjög sátt við útkomuna en væri nú alveg til í að geta notið hans örlítið meira.

      sumarkveðja
      Stína

      Delete
    2. Takk fyrir upplýsingarnar.

      Delete
  3. Æðislegar myndir! ég er ekki búin að gleyma bloggpartýinu góða, sú gula lætur vonandi sjá sig bráðum!

    ReplyDelete
    Replies
    1. Já vonum það nú og hlakka til að sjá þitt sumarlega framlag :)

      Delete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature