Top Social

Í gamla bænum í Chania

April 13, 2019

Hér er einn bloggpóstur sem ég ætlaði að byrta síðasta sumar....
en myndirnar voru svo allt of margar í einn bloggpóst svo ég geymdi hann og ætlaði að grisja myndirnar aðeins.....
En skellum honum bara í loftið svona.























































í bíltúr á Krít

April 7, 2019

Þegar við erum að plana hvert við viljum fara í sumarfrí í sumar er alveg tilvalið að skoða myndir frá sumarfríinu okkar í fyrra.
Eins og fram kom í bloggpóstinum um sumarfríið okkar á Krít 
þá tókum við bíl á leigu fyrstu dagana og keyrðum aðeins um til að skoða nánasta umhverfi. 
Ég mæli eindregið með því, ef þið farið þarna, að þið annaðhvort farið í einhverja ferð sem ferðaskrifstofan bíður uppá, athugið á hótelinu hvaða aðrar ferðir eru í boði eða eins og við gerðum takið bíl og keyrið um.... þessi eyja er bara svo allt of falleg og áhugaverð til að láta það alveg framm hjá sér fara.



þið þurfið ekki að fara langt, bara  beygja út af hraðbrautinni og þið eruð komin út í sveit og upplifið local stemningu.


Við byrjuðum á því að keyra í litla fiskimannabæinn Kolymvari sem er við tangann í enda strandlengjunar, þar eru Heimsferðir td með hótel sem við vorum nokkuð spennt fyrir en misstum af,


 þarna er rosalega rólegt, nokkur hótel í nágrenninu og ekki mikið um að vera en virkilega fallegt og  áhugaverðir veitingastaðir við höfnina .... eiginlega alveg fullkominn staður fyrir svona fólk eins og okkur sem sækir frekar í fallegt umhverfi, góðan mat og local stemningu í litlum bæ.

Við stoppuðum aðeins þarna, gengum um og fengum okkur hádegisverð á en keyrðum svo áfram...



Við fórum eiginlega óvart inní eitt lítið þorp þarna í staðin fyrir að keyra í gegnum það....


þvældumst um litlar þröngar götur 


sem voru eiginlega eins og gördjöss völundarhús....


og vissum ekki alveg hvert við vorum að fara....
vorum eiginlega að elta hr google og létum hann leiða okkur í undurfallegar villigötur


Miðað hversu vel þessum er lagt þarna í bílskýlið held ég að fólk noti bíla ekki mikið þarna,
amk hlýtur að taka tíma sinn að komast eithvert og leggja svo bílnum aftur. 


En við enduðum í blindgötu og þurftum að hafa mikið fyrir að snúa við aftur... 
ég amk nauð þess að upplifa þetta litla þorp en lærði að þú leggur bílnum og labbar svo um!!
Munið það!  

Við sem sagt komumst út úr þessu fallega þorpi og héldum áfram,
dagurinn var skýaður á köflum, það var ýmist glampandi sól eða skýað og reglulega kom smá rigning svo það þurfti reglulega að taka niðður toppinn á bílnum og setjann svo upp aftur.
 en við keyrðum þröngan fjallaveg í alveg stórfenglegu umhverfi til að komast hinum megin við eyjuna og þu nýtur þess svo mikið betur í opnum bil.


Á leiðinni voru nokkriri litlir áningarstaðir með geggjuðu útsýni ...
og þar voru oftast litlir sölubásar með hunangi og ólífuvörum og þar var ungt par með  vörur úr sinni fjölskylduræktun en flestar fjölskyldur þarna rækta sínar ólífur og hunang og þau voru svo rétt að byrja þarna að þau voru hvorki komin með logo eða neinar aðrar merkingar 

en hunangið þeirra var svooooo ótrúlega gott.


ótrúlega falleg leið.



Hinum megin við eyjuna er  Elafonissi ströndin sem er þekkt sem ein fallegasta ströndin í Evrópu en þarna í kring er varðveitt og merkileg náttúra, sérstæður gróður og gömul ólífutré.
Náttúran er friðuð og allt gert til að varðveita og passa upp á gróðurinn


ströndin er ótrúlega falleg og sandurinn hefur einstakan bleikan blæ við flæðarmálið.... hinsvegar þegar við vorum búin að straldra aðeins við og dáðst að fegurðinni byrjaði því miður að hellirigna, svo þetta er eina myndin sem ég tók áður en við forðuðum okkur aftur útí bíl.




á baka leiðinni stoppuðum við aðeins  í þorpinu Elos...


Við fengum okkur steiktann ost, grískt sallat og kaldann bjór... 
bara klassík í þessari ferð ;)






Næsti dagur var mun sólríkari við héldum áfram að keyra um og njóta...



Það er ekki annað hægt en að stoppa þegar keyrt er i gegnum þorpið Vouves og finna kyrðina og fegurðina þarna


þessi töffari fylgdi okkur um þorpið 
en það var varla að við sáum nokkurn á kreiki á þessum tíma nema hundana









Við skoðuðum ævaforna ólífutréð í Ano Vouves.


sem er talið vera um 3000 ára gamalt og er sérstaklega varðveitt vegna þess hversu einstakt það er í laginu


þarna í þessu dásmalega umhverfi var ekki bara eitt gamalt tré, heldur lítið safn um sögu trésing og ólífuræktina ...

þarna er líka kaffihús


og ég fékk mér krítverskt kaffi og appelsínu og olífuköku... sem var mun betri en kaffið


svo ég svissaði yfir í bjórinn



Út um allar sveitir eru ekki bara ólífutré, heldur er líka vínrækt um alla eyjuna,


Svo við kíktum auðvitað í  vínrækt

Karavitakis emmanoui








þarna lá að sjálfsögu köttur á stól eins og á öllum öðrum stöðum sem við fórum á 























































Auto Post Signature

Auto Post  Signature