Top Social

Showing posts with label sumar. Show all posts
Showing posts with label sumar. Show all posts

Sumarið kom í Keflavík! Garðvinna og skessuheimsókn

June 21, 2018
Já það fór nú vonandi ekki framhjá neinum hér á þessum landshluta að sumarið kom í gær...
að minsta kosti kom sólin og lét ljós sitt skína á okkur í einn dag.

Ég kíkti aðeins á garðinn minn, 
snyrti nokkur beð og dáðist að því sem er að springa út núna í Júní



Ég elska það að sjá að Gullregnið mitt er byrjað að kíkja uppfyrir veggin á pallinum, en ég valdi það því ég vildi geta séð aðeins í grænt og blómstrandi þegar ég er á lokuðum pallinum og ég vona að það eigi eftir að teygja sig enn lengra upp og breiða úr krónuni núna þegar það er komið upp og fær meiri byrtu og sól ....  það er þegar hún skín.


 Ég notaði svo sólardaginn í að pússa aðeins upp stólanan mína sem eru orðnir vel flagnaðir og þreyttir en svo verða þeir bara málaðir gráir... en líklega mun dekkri en þeir voru. 


Svo kíktum við Íris Lind aðeins á skessuna í hellinum seinni partinn,
og ég verð nú að segja að það var ólíkt hlýrra í skjólinu í garðinum hjá mér heldur en þarna niðri við sjóinn en þessi tvö voru alsæl


  og jú jú það var opið og skessan var heima



fallega ömmumúsin mín <3



 ótrúlega fallegt og sjórinn svo fallega grænblár á litinn!



og svo er það gönguleiðin okkar Loga.... 
hlaðni steinstígurinn okkar í Lúpínubreiðuni uppá Bergi
Alltaf uppáhalds!

Garðurinn minn - Blómstrandi í Júlí

August 16, 2017
 Ég gerði blómstrandi bloggpóst í júni, 
þar sem ég sýndi ykkur allt það sem blómstraði í mánuðinum,
getið skoðað hann hér:

Garðurinn minn - blómstrandi júni


og betra er seint en aldrei á vel við núna en hér er loks komð að bloggpósti um það sem blómstraði í garðinum í Júlí.

 Flest fjölæru blómin eru fyrir framan kofan sem er bakatil í garðinum og vonandi á þetta eftir að verða ævintýralegt blómstrandi svæði.

en enn eru beðin dáldið losaraleg og gisin en flest blómin í þessu beði fékk ég núna í sumar svo þetta verður spennanid að sjá næsta sumar.


Fingurbjargar blómið náði sér vel á strik eftir flutningana og blómstraði svona fallega í síðasta mánuði, mér skilst að það fjölgi sér vel svo vonandi verða þau orðin nokkur í hnapp fljótlega, en þannig eru þau fallegust finst mér.


Þetta held ég að sé Garðakobbi, það blómstraði ekki mikið og er pínu ritjulegt og gisið eftir flutningana en gerir sitt besta og beinir sínum fjólubláu blómum móti sólinni. 


Á móti kofanum er aðeins eldra beð en blómin þar eru sum á sínu öðru og þriðja ári held ég... sum höfðu meira að segja beðið í blómapottum í einvhern tíma eftir að fá blómabeð.
í byjrun Júlí var hér bara allt komið á hliðina. óvenju mikill vindur um mitt sumar setti sinn svip á blómabeðið þar sem Garða lúpinan og Jakobsstigi eða Polemonium coeruleum voru að skarta sínu fegursta.... nokkuð víst að þessar elskur fá stuðning næsta sumar svo við séum við öllu búin.
Jakobsstiginn er rosalega fallegur finst mér og hefur verið í beðinu í þrjú ár og hingað til staðið alveg uppréttur og ber lítil falleg blá blóm... 
sem sá sér alveg svakalega svo ég reiti pínulitla jakobstiga úr beðunum meira en hörðustu illgresi, en hann er þess virði.

þarna fremst eru blóm sem ég ræktaði upp af fræi:  Robinsons Giant mix, pyrethrum Daisy veit ekki islenska heitið, kom fyrst upp í fyrra og ég fékk bæði þennan dökkbleika og eitt blómstrar ljósbleiku. Mér finst hún passa rosalega vel með bleikum blómunum á Garðalúpínuni þarna við hliðina á henni....
eða að vísu hallar hún sér utaní hana.


þessi bleika litla dásemd var eitt af nýju blómunum í garðinum og tók svona rosalega vel við sér á nýja staðnum og blómstraði svona fallega. Veit ekki nafnið en það er frekar lágt og minnir á einhvern steinbrjót.


Þessi blómstrar reyndar ekki en er alltaf nálægt þegar ég er að stússast í garðinum 


Júlí er mánuður Sýrenunnar ..... bleik ilmandi blómin eru dásamlega falleg.



og stórkvisturinn var þakinn hvítum blómklösum....


Stórkvisturinn ber nafn með réttu, hann knæfir yfir höfðinu á mér með hvítu blómin sín,


og  við hliðina á stórkvistinum er svo Meyjarósin sem mér finst algjört æði, hún er risastór, með upprettar langar greinar og í ár blómstraði hún alveg rosalega mikið, var alsett bleikum einföldum blómknúpum og hún var alveg gríðarlega vinsæl hjá Humlunum sem suðuðu stanslaust af ánægju.


Blátoppurinn blómstraði í Júní og komst þess vegna í júní bloggpóstinn en i Júlí bar hann svo þessi dökku ber. 


þessi rós blómstraði líka, ég veit ekki nafnið á henni en hún ber eins blóm og meyrarósin svo þær eru í stil í sitthvoru horninu, þessi er alveg þónokkuð minni þó hún sé samt stór og þétt. 


Uppi á efri lóðinni er svo Birkikvisturinn og hann blómstraði líka þessum fallegu hvítu blómklösum sem eru svo einkennandi fyrir kvistina. 


Þessi loðkvistur er ekki blómstrandi en ég tók mynd af honum því ég var svo glöð að sjá að hann fékk öll laufin sín aftur en í byrjun sumars var hann alveg allsber og ég helt hann væri bara ónýtur. En líklega hefur einhver óværa komist í hann snemma og klárað hann alveg án þess að ég hafi orðið þess vör. En sem betur fer þá jafnaði hann sig.




Nýja skrautrunnabeðið að framanverðu skartaði gulum lit í mai og júni og svo í júli vék guli liturinn fyrir bleikum blómum hansarósarinnar.
og þar með er Júlí liðin og ágúst plönturna komnar í blóma.
Vonandi hafði einhver gaman að þessum bloggpósti, ég amk geri ráð fyrir því og stefni á að setja svo inn nýjann bloggpóst með því sem er að blómstra í Ágúst.... þó það sé nú ekki nærri jafn mikið.
Ég sé að ég þarf að fá mér fleiri fjölæringa sem blómstra síðsumars.

Hafið það sem allra best og endilega klikkið á læk takkan ef ykkur líkaði pósturinn.
Kveðja
Stína.


Garðurinn minn - blómstrandi júni

June 29, 2017
Voruð þið búin að skoða Garða bloggpóstinn síðasta?
þið getið séð þann póst hér fyrir neðan:

Ég ákvað líka að taka myndir af öllum blómum og runnum þegar þau eru í blóma, 
verða mér úti um nöfnin á þeim og halda skrá yfir þetta allt saman í einu garða-albúmi í tölvuni (endurnefni myndina með blómaheitinu og tölvan auðvitað heldur utanum allar dagsetningar svo ég get vitað námkvæmlega hvenær myndin var tekin) Gæti líklega verið að sniðugt að gera pinboard á pinterest fyrir þetta líka....  já ég kanski skoða það!
En þetta getur komið sér vel sérstaklega þar sem mikið af þessu eru ný fjölær blóm sem ég er að byrja að kynnast og á líklega eftir að færa til og þá er nú gott að vita hvenær þau blómstra og hvernig þau eru í blóma.

Gullregn og Allium laukur (haustlaukur)


Geislablaðka
Lewisia columbiana ssp. rubicola

Blágresi: 
Geranium sylvaticum

Glóðarvatnsberi: Aquilegia formosa



Garðavatnsberi:
Aquilegia 'McKana's Giants' 

 Klappavatnsberi:Aquilegia saximontana 

Gullhnappur
Trollius europaeus
Rottueyra - Cerastium biebersteinii



Gljámispill:
Cotoneaster lucidus

Blátoppur:
Lonicera caerulea



ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Garðurinn minn - svona lítur hann út sumarið 2017

June 28, 2017
Garðurinn minn er í mikilli mótun núna og langt í að mér finnist hann vera orðin það fallegur að ég geti státað mig af honum í held sinni hér á blogginu, en ég ætla samt að sýna ykkur hann eins og hann er í dag.
 Hvert einstakt blóm og skrautrunni er þó svo sannarlega orðið mikið prýði og veita mér ómælda ánægju yfir sumartímann og það sem ég er að njóta þess að móta og skapa mína litlu blómstrandi paradís.

já ég hef verið að njóta þess í botn að sinna garðinum mínum í sumar en tók mér smá pásu og ákvað að gera garðabloggpóst fyrir ykkur sem hafið áhuga á svona blómstrandi fegurð.
Þessi bloggpóstur er meira um það hvernig landið liggur hér í garðinum og hvað uppá vantar til að hann teljist nógu fallegur. 
En svo kíkjum við betur á hverja plöntu og hvað er að blómstra núna í júni í næsta bloggpósti. 
En allt sem vex í garðinum blómstrar fallega hvort sem það er blóm, runni eða tré. 
Svo geri ég ráð fyrir því að halda áfram og gera enn einn um það sem blómstrar í júlí osfr
og vonandi á þessa bloggsyrpa eftir að fylla bloggið af fegurð og gleðja ykkur þar til við getum farið að kveikja á kertum og gera innibloggpósta.

Ok svona lítur sem sagt garðurinn minn út snemm-sumars 2017:

Lóðin skiptist í efri og neðri lóð og þegar ég flutti var þetta bara grasflöt og svo pallur bakviðhús. 
lóðin skiptist í neðri/efri með brekku sem lá á ská frá húshorninu og ég byrjaði á því að planta stórvöxnum runnum í neðri hlutann til að fá skjól.... 
svo liðu nokkur ár þangað til ég gerði eithvað meira, en síðustu tvö sumur hef ég svo haldið áfram. td breytti ég þessari brekku í bogadregið steinabeð í fyrrasumar og gerði tröppur.... eins og sést  á þessari mynd að ofan. 


Stóru skrautrunnarnir eru að gefa ómetanlegt skjól, aðalega þannig að ég horfi ekki útá götu þegar ég sit við litla hvita borðið við kofann.... þe ef ég horfi í þessa átt haha 
Reyndar sé ég ekki yfir þessa runna þó ég standi þarna heldur því þeir eru það stórvaxnir
og ég er alveg að elska það.

og ég vil taka að fram að ég keypti allar pönturnar í Gróðrastöðinni Glitbrá í Sandgerði og það var löngu áður en ég  fór að vinna í blómabúðinni Glitbrá og hef haldi mig við að versla allt í garðinn þar.


Bakvið kofann eru Stórkvistur og Meyjarrós sem bæði eiga eftir að blómstra fallega í júlí og eru risastór og uxu hratt. (Rósin er þakin blómknúpum og mun líklega blómstra bettur en nokkurntíma áður) Þarna á bakvið er ég líka með moltu tunnu....  þetta er svona eiginlega eini bakgarðurinn þannig lagað þar sem hægt er að hafa það sem ekki er til skrauts eins og þessa tunnu og verkfærin í lok vinnudagsins.



Við hliðina á Stórkvistinum er svo Sýrena sem við sjáum aðeins í blómin sem eiga eftir að verða ljós bleik og falleg, þarna í horninu á bakvið stóra steininn er rós sem er stór og þétt en ekki nærri eins stór og Meyjar rósin en blómstrar eins bleikum einföldum blómum í júlí og mér sýnist hún líka ætla að vera einstaklega blómviljuð í ár (man þó ekki nafnið á henni eins og er)


Að framan er meðal annars Blátoppur sem er í blóma núna.



Þar sem ég var að breyta skilunum milli efri og neðri hlutarins og bjó til steinhæð sem nú tilheyrir samt neðri hlutanum, í staðin fyrir grasbrekku sem var áður, vantar að fá áframhald af þessum stóra skjólrunnavegg svo ég var að gróðursetja tvær rósir í viðbót og sýrenu sem munu þá enda þennann skjólvegg betur einhverntímann.....  og það fljótlega miðað við hvað tíminn flýgur áfram! Trúið mér!
Þessar stöllur heita þyrnirós sem fær hvít blóm í júlí og Fjallarós sem skartar einföldum bleikum blómum og er mjög lík þeirri sem er í horninu við steininn.

 Svo er það nýja blómabeðið mitt.....
 eða blómasvæðið:

Ég hef lengi átt mér draum um að gera svona mikið og villt blómahaf við kofan og með "gömlum" óreglulegum stíg sem liggur innanum blómin og inná pallinn. Sumarið 2015 byrjaði ég svo á því að leggja hellur og gera beðin.... og þetta er að verða svo dásamlega blómlegt og fallegt að ég fæ svona ótrúlega fallega tilfinningu þegar ég stíg þarna út...lyktin og suðið í flugunum ómæ!!!
Þarna sjáið þið líka hvað það mun breyta miklu þegar rósirnar mynda skjól þarna við grindverkið, en þær verða 1,5 til 2 metrar á hæð. Núna sést beint frá götuni og inná pall þegar pallurinn er opin.


Þarna er Allium laukurinn sem er að reyna að stela athyglinni.
Gullregnið mitt er í góðu skjóli inní horni við palla vegginn og blómstrar alltaf alveg ótrúlega vel í Júní og hefur stækkað ótrúlega hratt síðustu ár, það er meira að segja farin að slúta aðeins yfir á pallinn.
Ef einhver er að hafa áhyggjur af eitraða gullregninu þarna við göngustíginn þá er það alveg skaðlaust  þó fólk nuddist utaní það en ég nota það ekki í matargerð eða útá sallatið... það væri frekar illa gert af mér. Hundurinn á það til að naga sum blómin í gaðrinum en lítur ekki við gullregnið.
Bara svona áður en fólk fer að vara mig við.


Ég fór í heimsókn í gróskumikinn garð um daginn og fékk fullt af afleggjurum sem eru sumir litlir núna en eiga ýmist eftir að mynda háar þekjur eða skríða um í steinhæðinni síðar meir, svo beðin eru kanski frekar gisin núna en eiga eftir að verða mikið augnayndi og í vor var þetta bara moldarbeð með tveimur plöntum. 
svo.....
þetta er allt á réttri leið vona ég.

Svo er það  litla steinahæðin mín.
Það er alveg hægt að ná svona nærmynd frá vissu sjónarhorni þar sem hún virkar gróin og fín.
En......

það er dáldið annað að sjá hana í heild sinni, þessa mynd tók ég td meira til að hafa sem fyrir mynd seinna meir og ég ætlaði alls ekki að byrta hana en þetta er nú partur af því hvernig garðurinn lítur út í dag: grasið óslegið,  ungir runnar sem ekki mynda neitt skjól enn og hellur liggja á víð og dreif... því ég var að máta hugmynd  sem er í kollinum á mér.
 En mig langar til að sleppa alveg grasi á þessum hluta lóðarinnar.... já maður er alltaf að spá og plana.
Rósirnar eiga væntanlega eftir að gera mikið þarna til að mynda skjól við grindverkið. Gljámispillin var annarstaðar í garðinum og var fluttur til og er núna eins og lítið limgerði milli lóðarhlutana og er að þéttast vel.  hann hefur síðustu hár verið uppétin og allsber á þessum tíma en alltaf jafnað sig og fengið ný lauf, en í ár er hann næstum alveg laus við óværu og virkilega hamingjusamur og blómstrandi eins og allur annar runnagróður í garðinum í ár.
Ég tek það fram að ég hef aldrei eitrað hjá mér en hef notað rabbarbara-blaða-blöndu þegar ég er alveg að gefast uppá endalausum maðka ágangi... en það er önnur saga að segja.
Maðka hef ég hinsvegar séð aðeins í ár en engin plága, kanski er það eithvað í tengslum við óvenju mikinn fuglasaung sem ég verð vör við úr stóru öspunum í næsta garði við minn!! Hver veit. en er ekki náttúran dásamleg ef hún fær að vera í friði?  Svona oftast nær amk.
En ok nóg um þetta ljóta horn og maðkaleysið í gaðrinum.

 Svo er það efri hlutinn af lóðinni:


Vorið 2015 var efri hlutinn enn bara grasflöt en ég gerði runnabeð meðfram Vallargötuni með Birkikvisti og gerði breitt beð með blönduðum skrautrunnum Klapparstígsmegin, sumt af því keypti ég nýtt í Gróðrastöðinni Glitbrá og annað færði ég til annarstaðar frá í garðinum eða úr kerjum á pallinum.
Á myndinni hér að ofan eru td allir litlu Birkikvistirnir mínir í bakka... bara lítil kríli.

Birkikvisturinn tók strax rosalega vel við sér og þéttist helling og svo óx hann enn meira í fyrrsumar og það verður gaman að sjá hvernig hann verður núna í lok sumars


Hérna sjáið þið hvað hann ætlar að fara að blómstra rosalega (mynd tekin í síðustu viku) en svo er  spurning hvort það muni sjást almennilega því hann vex svo rosalega að nýjar greinar eru óðum að vaxa fyrir blómin.


Ég setti niður þrjá litla gullsópa sem mér finst algjört æði, þeir hafa stækkað ótrúlega vel og blómstra allt sumarið held ég... amk byrjar hann rosalega snemma og ilma dásamlega.


þessi beð eru að mestu með skrautrunnum sem eru lágir og litríkir og ólíkt neðri hlutanum þar sem eru stórvaxnir runnar og fjölær beð, þá eru þarna næstum engin blóm nema krókuslaukar og annað sem blómstrar eldsnemma vors áður en neitt annað vaknar í garðinum.. svona til að boða vorið.

Svo ætla ég að ljúka þessum langa bloggpósti á myndum af sumarblómum í pottum og kerjum.




Vonandi hafði einhver ánægju af þessum garðabloggpósti.... líklega eru það nú bara sérstakir og einstakir blómaálfar eins og ég sem nenna að lesa þetta upp til agna.

En takk fyrir innlitið
og hafið það sem allra best elsku litlu garðálfar.

með bestu kveðju
Stína Sæm

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan launa það með því að klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Auto Post Signature

Auto Post  Signature