Top Social

Sumarbústaðurinn á Þingvöllum #2

May 27, 2016
Mig langar að sýna ykkur okkrar myndir sem ég tók í sumarbústaðnum hennar systur minna þegar ég fór þangað síðast.
Ég tók svo mikið af myndum að við deilum þeim niður og skoðum bara myndir af aðalrýminu núna.



 Þessi litli og gamli bústaður er ótrúlega vel skipulagður og rúmgóður og virkar bara alls ekkert svo lítill eða gamall...



 svo finst mér hann alveg ofboðslega flottur og vel innréttaður af snillingnum henni systur minni og ég fæ bara ekki nóg af að dásama hann.
Eldhúsið finst mér td alveg ofboðslega flott 


og það er nú ekki amalegt að standa við eldhúsvarkin þarna

og horfa út um gluggan á útsýnið.

hér eru það smáatriðin sem skipta máli og svona fallegt stell á ekkert að vera uppí skáp heldur á frekar að stilla því uppí hillu ásamt tréskálum og öðru eldhúsfíneríi.


Leirtauið í hilluni er blanda af tveimur litum af þessu fallega Broste stelli frá Húsgagnahöllinni og er bara svo skemmtilega töff og flott í sveitina.

og hann er ekki bara töff og flottur heldur geymir hann margar perlur og gamla hluti.
Hluti sem við eigum minningar við og er svo ótrúlega gott að sé þarna, á þessum fallega stað og í svona góðum höndum.
Eins og hitaplattan hennar mömmu og gamla pottinn sem pabbi notaði fyrir hamsatólgina....
jájá ég man nú líka eftir heitu súkkulaði í honum og vonandi fær hann það hlutverk sem oftast  í framtíðinni.

Hrærivelin hennar mömmu, sem ég held að sé á aldur við mig og er enn í fullu fjöri.....
svona eins og ég.
Keramik plattinn með bláu blómunum er líka að heiman og ekki bara skraut því hannn er æðislegur til að bera fram td álegg.

og brauðkarfan og hakkavelin eru líka svona gersemar að heiman.... 


geri þó ráð fyrir að brauðkarfan eigi eftir að koma að meiri notum í bústaðnum en hakkavelin.
en hver veit hvað hún systir mín á eftir að taka sér fyrir hendur í sveitinni?

Var ég nokkuð búin að segja of oft hvað mér finst þetta ofsalega flott?





og ekki skemmir hvað útsýnið er alveg stórkostlegt,
eins og einn nágranni þeirra sagði þá ertu með nýtt málverk fyrir utan á hverjum degi.

Í horninu stendur húsbóndastóllinn sem mamma gaf pabbba í 30ára afmælisgjöf  og passar bara vel þarna með sumarstólunum frá Ilva.
Húsbónndinn föndraði svo ljósin sem hanga í sitthvoru horninu 

Gamla stofuorðið sem fékk nýtt útlit með Milk paint sem hæfir svona gamalli frú 
Svona kamína ætti nú bara að vera skylda í öllum sumarbústöðum,
alveg ótrúlega notalegt.


Já það eru þessi litlu fallegu atriði sem gera sumarhúsið að heimili 

Þessi skápur er algjör töffari og engum líkur

Sjónvarpshornið, 
kósý og notalegt og ekki er verra að þarna er auka svefnpláss ef gestir ílengjast.



Ég á enn eftir að sýna ykkur nokkur af þeim verkefnum sem ég málaði með þegar við systur fórum til að gera bústaðinn klárann fyrir fjölskylduna, en það vantar bara góðar eftir myndir af þeim málningarverkefnum svo ég skelli því bara inn síðar, enda er bara gaman að geta gert nokkra bloggpósta úr svona skemmtilegu verkefni.
 Hér eru aðrir bloggpóstar frá bústaðnum:
Takk fyrir innlitið
Kær kveðja
Stína Sæm

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.
8 comments on "Sumarbústaðurinn á Þingvöllum #2 "
  1. Fallegt leirtauið - hvar fenguð þið það?
    Bara allur bústaðurinn er yndislegur :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Já það er ótrúlega fallegt og passar svo vel þarna. þetta er frá Broste og eru tvær línur blandaðar saman, er keypt í húsgagnahöllinni, fæst líka í Ilva

      Delete
  2. Yndislegur bústaður, svo fallegur :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Já hann er æðislegur og svo ótrúlega notalegt að vera þarna :)

      Delete
  3. Mikið er þetta fallegur bústaður 😊 Langar til að forvitnast um hvaðan ljósin yfir borðstofuborðinu eru?

    ReplyDelete
    Replies
    1. þau eru frá Ilva. Eru til í nokkrum stærðum og þetta er ekki stærstu ljósin :)

      Delete
  4. Glæsilega innréttaður sumarbústaður hjá ykkur systrum :)

    ReplyDelete
  5. Hæhæ - ég er algerlega heilluð af þessum bústað -
    Greinilegt að hér eru einstakar smekkmanneskjur á ferð :)
    Mig langar svo til að spyrja hvaða grái litur þetta er
    á veggjunum og hvar fæst hann?
    Bestu kveðjur
    Ingibjörg :D

    ReplyDelete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature