Top Social

Showing posts with label kalklitir. Show all posts
Showing posts with label kalklitir. Show all posts

Hver er Munurinn á Milk paint, Chalk Paint og Kalkmálningu

October 20, 2016
Ein af stóru spurningunum.....

Hver er munurinn á milk paint, chalk paint og kalkmálningu?

Í fyrsta lagi þá eru það þrjár algjörlega sitthver gerðin af málningu. 

Athugið að chalk paint og kalkmálning er ekki sama málningin. 

þessar tvær eru í raun gjörólíkar. önnur er gerð úr kalksteini, hin er nefnd chalk þvi hún er með þurrt "chalky" yfirborðen oftast eru báðar kallaðar kalkmálning á Íslensku sem getur valdið miklum miskilningi. (chalk paint er sú málning sem við fáum í föndurbúðum hér á landi, td frá Folk-art eða Mörtu Steward... svo ég viti til)  svo ég mun tala um chalk málningu  í þessum bloggpósti til að aðgreina þær í staðin fyrir að þýða nafnið (chalk þýðir í raun krít frekar en kalk)

ókei! eruð þið með mér?!



hjá Auskula

October 8, 2012


Fyrsti bloggpósturinn minn í febrúar 2011var um heimili Auðar Skúla og Hjartar á Akureyri,
sem reka saman fyrirtækið kalklitir, en Auður er menntuð í skreytislist og gamalli málningartækni og mikill fagurkeri. Hún er líka með bloggsíðuna  whendecorating.blogspot.com og þar varð eiginlega kveikjan að þessu bloggi mínu og mín fyrsta uppspretta að interior bloggsíðum.
Þegar ég svo gerði fyrsta bloggpóstinn var ekki svo auðvelt að finna góðar myndir af heimilinu á netinu, en ég átti innlit á heimili þeirra hjóna í Hús og híbýli og ég fann aðeins nokkrar myndir á bloggsíðunnu hennar til að nota í þennann fyrsta bloggpóst minn.
Nú fyrir stuttu síðan byrtist svo innlit á heimilið á síðunni Home and delicious og á stuttum tima hefur  verið gaman að rekast á þetta undurfallega heimili á nokkrum stórum síðum og sjá frábæra dóma um svona fallegt Íslenskt heimili.
Svo nú fanst mér  tilvalið að deila með ykkur öðru innliti á heimili þeirra hjóna, þar sem handverk Auðar nýtur sín vel í hverju rými.














myndirnar koma frá homeanddelicious.com/
málningin fæst í Litalandi
síður Auðar Skúla:
kalklitir.com 
whendecorating.blogspot.com  
facebook./auskula




Stína Sæm




kjallarinn fyrir og eftir // the bacement before/after

March 24, 2012
Nirði í kjallaranum var áður fullbúin íbúð með tveimur svefnherbergjum.
  Það er nokkuð síðan við gerðum stiga niður og bættum kjallaranum við heimilið, unglingarnir hafa verið með herbergi þar auk þess sem við fluttum sjónvarpið niður. En þar var aldrei neitt sérstaklega huggulegt, svo ég fari nú mildum orðum um ástandið.

Núna var annar sonurinn og kærastan að byrja að búa og hinn sonurinn fór í 6 mánaða útlegð til Tælands svo við notuðum tækifærið og máluðum kjallarann allann og útbjuggum nýtt gestaherbergi í öðru herberginu.
Það eina sem var keypt var málningin (jú og ný sormjárn fyrir gluggana) , allt annað var þarna fyrir eða dregið upp úr geymslunni, búið til úr brettum og ávaxtakössum og jafnvel strigapokum.


fyrir gestina

March 22, 2012

Við erum loks búin að flikka upp á kjallarann ... svona að mestu leiti, nú á ég bara eftir að klára smáatriðin; hengja upp hitt og þetta, föndra pínu meir. breyta smá. bæta aðeins við... sagði ég klára smáatriðin?!
jæja, halda áfram að punta smá, á betur við.


Ég hef verið að setja inn myndir af lagfæringunum nokkurveginn jafnóðum í albúmi  á  facebook. og ótrúlega margir hafa fylgst með því þar en þær myndir hafa bæði byrst hjá auskula sem framleiðir þessa frábæru kalkmálningu og hjá stöllunum með Hugmyndir fyrir heimilið og ég  þakka þeim öllum fyrir frábær ummæli og hrós um þetta skemmtilega og einfalda verkefni mitt. 

En mér finst amk kominn tími til að sýna ykkur hérna hvernig útkoman er
og byrja á gestaherberginu:


Þó við séum ekki mörg á heimili lengur, er full þörf á þessu herbergi, í fyrsta lagi þá eigum við tvö frábær börn sem búa í Noregi og koma reglulega til að vera hjá mér og pabba sínum. Unga daman hefur núna fengið risherbergið útafyrir sig og bróðir hennar mun þess vegna fá þetta herbergi til umráða.

Svo á ég fullt af frábærum frændsystkynum á öllum aldri sem eru mikið í heimsókn eða pössun hjá Stínu frænku  og Gunna og þarna verða núna leikföng og bækur fyrir yngstu gestina. En þar á meðal eru Tonka bílar sem Gunni átti og fullt af öðrum gömlum og furðu vinsælum leikföngum í bland við nýtt. 


En kíkjum betur á herbergið;

Rúmið er eins og þið sjáið búið til úr vörubrettum, náttborðið er trappa sem sonur minn gerði í smíðanámi og ég notaði sem borð fyrir kaffibollann úti á palli í amk tvö ár svo það var orðið skemmtilega veðrað.
Fjölin fyrir ofan rúmið er af einu vörubrettinu  og nöglunum úr brettinu var bara dreyft reglulega um fjölina til gera snaga fyrir hitt og þetta skemmtilegt.
 Púðarnir tveir eru svo gerðir úr strigapolum frá Kaffitár. 



ég þakka ykkur í auðmykt fyrir hreint ótrúleg viðbrögð við því sem komið er.
Hlakka til að sýna ykkur fleyra frá kjallaranum.

Stína Sæm



með dökkgráum sjarma

October 18, 2011
Ég sá þessa mynd hjá Auskúla um daginn.
og ég, sem er bara alls ekkert fyrir gráann lit, (undarlegt hvað það er að breytast)  varð alveg dolfallin..
finst þetta hrikalega  töff og djarft.
þetta hús kemst bara alveg upp með þetta finst mér.


Nokkru seinna rakst ég svo á þessar myndir eftir ljósmyndarann janluijk og get svo vel ímyndað mér að nákvæmlega svona sé þetta hús að innann:
(myndirnar tengjast ekkert)
dökkir kalkmálaðir veggir, gardínur og sófar úr grófu efni í sama lit og  vel valdir fallegir hlutir í hverju herbergi...











Ég veit ekkert um þessar myndir eða   hvar þær eru teknar, 
En það er einstaklega glæsilegur og dulúðlegur bragur yfir þessu öllu saman,
eiginlega eins og úr öðrum heimi.




Stofuskápurinn er orðinn hvitur og fínn!

October 12, 2011
já það hafðist.
Skápurinn er loksins orðin tilbúinn 
og ég er svo montin af honum að hann er myndaður í bak og fyrir eins og smábarn

Hér sjáum við beint framan á hann:

í frönskum steinkastala

September 11, 2011
Nú nýlega bætti ég síðunni; the paper mulberry á blogglistann minn, en þar rakst ég td á þetta glæsilega franska setur  Château de Moissac   
Nú dreymir mig um rómantískt sumarfrí í frönsku sveitarþorpi með ástinni minni, þar sem við sitjum í einum af sölum steinkastalans og borðum osta og drekum rauðvín af bestu gerð.











inná baðherbergi í Frakklandi.

July 20, 2011


Ég fann þetta dásamlega fallega baðherbergi hjá ameriskri konu sem hefur búið í Frakklandi í 20 ár og bloggar um leit á frönskum flóamörkuðum og lífið í Frakklandi


Ég er ekkert ein um að reyna að sættast við bláar baðherbergis flísar, 
en áður var baðherbergið hjá henni svona

Hún var ekkert of hrifin af báu flísunum en þær voru ekki það versta og margt annað sem lá meira á að gera.
En þá fann hún þetta á næsta markaði;
algjör dásemd!
þá var nokkuð ljóst að bláu flísarnar myndu fjúka fljótt..
og ráðist var í framkvæmdir og útkoman hreint út sagt frábær

vaskurinn og blöndunartækin er nýtt

....en flest annað fundið á flóamörkuðum.






veggina málaði hún með því að blanda saman nokkrar gerðir málningar og bera svo á þá húsgagnaáburð...
jebb alveg rétt... nema ég bara skilji alls ekki enskuna.
og ég sem hélt þetta væri kalkmálning, hefði svo getað svarið fyrir það.
En útkoman er alveg eins og eldgamalir veggir.
Bara flott

skápurinn var gamall og brúnn, en fékk sömu meðferð og veggirnir.
Hún er snillingur!
Á gólfið var svo lagt fallegt haðrviðargólf.

 þessi fallegi stóll situr á besta stað í herberginu enda er gaman að segja frá því að í Frakklandi er ekki klósett á baðherberginu, heldur er klósettið í skáp langt frá baðinu. 
Svo ef þú ert í frakklandi og vilt fara á klósettið spyrðu ekki hvar baðherbergið sé ...nema þú ætlir í bað, heldur spyrðu um klósettið.
 Þá vitum við það!


Baðkarið stendur virðulega á miðju gólfinu í þessu undurfallega herbergi og mér finst það eiga alla athyglina svo sannarlega skilið.

Þið getið lesið allt um baðherbergið hjá" tongue in cheek " sem þyðir safnari á flóamörkuðum, og nú bíðum við bara eftir að hún geri upp eldhúsið sitt.


Takk fyrir innlitið

Auto Post Signature

Auto Post  Signature