Ég sá þessa mynd hjá
Auskúla um daginn.
og ég, sem er bara alls ekkert fyrir gráann lit, (undarlegt hvað það er að breytast) varð alveg dolfallin..
finst þetta hrikalega töff og djarft.
þetta hús kemst bara alveg upp með þetta finst mér.
Nokkru seinna rakst ég svo á þessar myndir eftir ljósmyndarann
janluijk og get svo vel ímyndað mér að nákvæmlega svona sé þetta hús að innann:
(myndirnar tengjast ekkert)
dökkir kalkmálaðir veggir, gardínur og sófar úr grófu efni í sama lit og vel valdir fallegir hlutir í hverju herbergi...
Ég veit ekkert um þessar myndir eða hvar þær eru teknar,
En það er einstaklega glæsilegur og dulúðlegur bragur yfir þessu öllu saman,
eiginlega eins og úr öðrum heimi.
