Top Social

... og gamalt

March 9, 2011
 
Ella systir fann þessa vikt í iyfirgefnu húsi og gaf mér hana.
Hún situr núna upp´á skáp hjá mér, í góðum félagskap með gömlu vaskafati sem við fundum líka og þvottabursta sem afi hans Gunna átti.
Posted by Picasa

.. hjá GreenGate

March 8, 2011
Ég vissi ekki hvað GreenGate er fyrr en í sðustu viku, þegar ég rakst á blogg um það hjá Put it in a box. Síðan þá les ég varla norðlensk interior blogg nema rekast á fallegann lattebolla eða skál frá Greengate, svo ekki sé talað um púðanna eða teppin. Ég held að ástæðan sé sú að nýji listinn þeirra fyrir 2011 var að koma út en þar er svoooo margt fallegt að sjá.
Kíkjum á nokkrar myndir úr listanu svo þið vitið hvað ég er að tala um;

Bláa línan þeirra er einstaklega falleg... ef ég væri eitthvað fyrir blátt það er að segja.

 
svo eru svona dásamleg blómamunstur sem er flott að blanda samanvið aðrar litalínur.



græna línan er alveg fyrir mig.. og takið eftir möffinsforminu! kökuform og möffinsform eru til í mörgum af munstrunum.. sweet!

og svo er þessi æðislega bage litaða lína hjá þeim
lattebollar úr grænu og bagelínunni... já takk, bara flott
eldföst form, tauservettur, æðisleg glös, dásamlega blómleg rjómakanna og kaffibollarnir! expresso. latte  og svo mix and match með öðrum litum. Sætir kaffibrusar og tinbox... dásamlegt <3

kveðja og knús!




Blúndan mín fallega

March 7, 2011
Ég sat yfir einni biómynd um helgina, með sprettarann minn og blússu sem ég hef aldrey notað, og græddi þessa fínu blúndu með litlum ísaumuðum perlum. Efnið í blússunni verður svo klipt niður og notað í rósir eða annað sætt föndur (sem líklega verður fljótlegra að gera en að spretta blúndunni af ;)

En er hún ekki sæt og fín?
Posted by Picasa

Axel Vervoortd

March 4, 2011
Á leit minn um netið að kalkmáluðum húsum, rakst ég á hönnuðinn Axel Vervoordt . Hann á kastala sem hægt er að skoða á síðunni og framleiðir sína eigin húsgagna línu og safnar antík. Ef ég eignast einhvertímann kastala eða óðalsetur má hann hanna það allt fyrir mig.. já takk.




Sveita s







ég læt þetta næga í bili þó ég gæti haldið áfram, af nógu er að taka.
En ég mæli með soðunarferð um kastalann á axel-vervoordt.com.

Tin, tin og tin

March 2, 2011
Þar sem ég er nú með hugann við tin skilti... verð ég að skella þessum með. Á þau í tölvunni og veit ekkert um upprunann.





og þetta er örugglega ekki það síðasta sem ég set inn af  þessu!

Pandoras eske

March 1, 2011

Vinkona mín í Noregi benti mér á síðuna Pandoras Eske, en svo heppilega vill til að verslunin er í nágrenni við hana.... og nú læt ég mig dreyma um nýtt creditkort með óheftri heimild og engum gjalddaga og eitt stk gám :)

Pute, Englepar (60x40)En verum pínu raunhæf og kíkjum á dásamlega fallega púða ;



Pute, Blomsterengel (60x40)Pute, Amor (45x45)Pute, Arabesque (50x30)Pute m/sløyfer (42x42)Pute, Englepar (45x45)
  Sem  smellpassa  allir við stofuborðið mitt, dúkinn og dúleríið á borðinu en...... passa bara alls ekki við munstraða antík sófasettið mitt! En það er allt í lagi því ég fann þennann fína sófa við púðana

Sofa i lin m/eikerammeen ok kanski ekki eins raunhæft, en þá eru púðarnir alveg fullkomnir í nýmálaða svefnherbergið og uppgerða gamla rúmið mitt eins og það er í höfðinu á mér eftir endurbætur.
En í bili læt ég mig dreyma um mjúka púða með svona ægilega rómó munstri og húsgögn í stíl ;)
  

Enn meira af möffinsmyndum




Ég eyddi morgninum í að mynda möffinskökurnar mínar og reyndi í leiðinni að læra á myndavelina og picasa forritið. 
Lék mér af ymsum uppstillingum og dúlleríi og á fullt af myndum til góða.  Bætti svo brauðbollum og snúðum á morðið, bauð systrunum og vinkonu í sumarmöffinsparty og við vorum sammála um að mun skemmtilegra er að borða svona fallegar möffins.

                                                                             


Auto Post Signature

Auto Post  Signature