Top Social

Showing posts with label kitchen. Show all posts
Showing posts with label kitchen. Show all posts

Eftir Framkvæmdir Hjá Syni Mínum, Nýjar Myndir fyrir og Eftir

March 26, 2017

Muniði eftir bloggpóstinum sem ég byrti um daginn, 
um framkvæmdirnar heima hjá syni mínum hérna hinum megin við götuna?
Þið getið skoðað þann póst hér:

Framkvæmdir hjá syni mínum, myndir fyrir og á meðan


Nú er komið að því að sjá hvernig gengur og skoða nýjar myndir frá heimilinu.
Er ekki alltaf svo gaman að sjá svona fyrir/eftir pósta

draumaeldhús og bað frá Alvhem

January 6, 2017
 Ég rakst á þessa íbúð á netrölti einn daginn og elshúsið og baðið heillaði mig að öllu leiti,
hvert einasta smáatriði í eldhúsinu, frágangur, aukahlutirnir og heildarútlitið finst mér  bara algjört æði..... svo ég noti nú mitt allra háfleigasta og sterkasta lýsingarorð!!

































Íbúðin er alveg einstaklega glæsileg og fallegt og á alvhem er fullt af  fullt af myndum í viðbót.

Hafið það sem allta best í dag,
kær kveðja;
Stína Sæm

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Mánudags innlit í töff eldhús í Itölskum stíl með frönskum bistró áhrifum.

November 9, 2015
Innlit í töff eldhús hjá Malin Persson.
Dökkir litir og hlílegur kopar myndar fallegar andstæður við hvítar flísar í hólf og gólf, og stóra bjarta glugga svo rýmið flæðir út.


Eldhúsið er hannað utanum stórglæsilega svarta skápinn sem kemur frá Italíu, sem alltaf stóð til að yrði miðpunktur í þessu alls ekki týpiska, sænska eldhúsi. En áhrifin eru Ítalskur stíl og franskur bistró fílingur.




Skápurinn kemur frá Italíu en Malin bjó þar í sextán ár, og er stór að það þurfti að taka aðeins ofan af honum svo hann passaði við loftæðina.

Blöndunartækin finst mér alveg einstaklega heillandi og falleg og setja sterkann svip á heildarmyndina í eldhúsinu, en hér er fallegur lítill granítvaskur við hliðina á eldavelinni með þessum fallega krana sem fanst á sænskum markaði. 

Barstólarnri eru frá House doctor en dásamlega ljósakrónan fékst á markaði í Marrakesh.
 Litirnir á veggnum eru frá því húsið var byggt og koma skemmtilega á óvart í eldhúsinu.

 Eldhúsáhöldin eru í gömlum skáp við eldavelina sem átti bara að vera til bráðabyrgða en í dag er eins og hann hafi hvergi annarstaðar átt að vera.

 Ég  þakka Malin fyrir að sýna okkur eldhúsið sitt
 og vona að þið eigið öll dásamlega góðann mánudag.

Kær kveðja 
Stína Sæm

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Eldhús moodboard

October 28, 2015
Ég er fyrir löngu komin með leið á eldhúsinu mínu og þegar nýjasti Ikea bæklingur kom út gerði ég svona lítið Ikea eldhús moodboard,


ég krotaði hringi og merkti við það sem freistaði mín mest,


og svo sat ég með bæklingin og litaprufur og planaði nýtt og fallegra eldhús...
eikarlistarnir með þessum græna lit var svo löngu farið að fara í mínar allra fínustu, (alveg neglurákritartöflu hrollur) 
og þar að auki voru tækin alveg við það að gefast upp og virkuðu bara að hluta til og höldurnar áttu það til að detta af skápunum við álag, brunablettur á borðplötunni og....
já svo það tókst að sannfæra eiginmanninn um að það væri nauðsynlegt að mála skápana.



Flísarnar skyldu fá að halda sér og yrðu svona ríkjandi punktur í eldhúsinu, 
ég fór svo til strákana í Flugger í Keflavík og valdi ljósgrá/grænann lit á skápana og í skúrnum er ég með borð og stóla sem ég er að mála með svartri milk paint, svo þeir minna mig á svona rustic kaffihúsa stemningu.

Með þetta í huga skunduðum við hjónin svo í Ikea
 og hér er innkaupalistinn í myndum:



Við völdum dökku tækin, með þessu gamla útliti að sjálfsögðu, bara ódýra plast borðplötu með rustic viðarlúkki, hvítann vask og svört blöndunartæki og höldur. svo svarta slá, til að frúin geti hengt hitt og þetta upp um allt, til að skreyta, enda dugar borðplássið ekki til.

Svo var hafist handa við að tæma skápa og skúffur, rífa burt það sem átti að endurnýja og byrja að mála, veggirnir verða líka málaðir hvítir en þeir hafa verið í þessum grágræna tón, sem núna er komin á skápana í staðinn. 
Eldhúsið er nú óðum að taka á sig nýja mynd og það verður gaman að sýna ykkur  eftir breytingar,
 en þangað til er nóg að gera og húsið í rúst... ég meina hvað var ekki í þessum skápum!?

En nú er ég farin í "eldhúsverkin" bloggið búið að fá nóga athygli í bili.
þar til næst...
hafið það sem allra best.
Kær kveðja
Stína Sæm.


ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Fresh herbs // ferskar kryddjurtir

November 13, 2014

I was so happy when I found fresh herbs in the local supermarket last weekend.
I picked up two types and keep them by the stove, with the seasoning and oil,
now I pick a piece of basil, and put into the salad along with tomatoes.
 love it!!


Ég var alveg ótrúlega ánægð um helgina þegar ég fann kryddjurtir í pottum í Bónus,
ég nældi mér í tvær gerðir og hef þær við eldavelina, með kryddinu og olíunni...
skelli svo smá basil í sallatið með kirsuberjatómötum, æði!!

and the smell in the kitchen..mmmm
I love the smell of fresh herbs and always need to touch them a bit when I´m close to them....
just a litle touch to feel the smell..


og ilmurinn í eldhúsinu...mmmmm
Ég elska kryddlyktina sem kemur af ferskum kryddjurtum og þarf alltaf að koma aðeins við þær þegar ég er nálægt... aðeins að snerta og finna ilminn.











fallegt og heimilislegt eldhús

May 19, 2014









Stadshem er fasteignasvefur í Stokkholmi 
sem sérhæfir sig í gömlum byggingum með sál og sögu.
Þar eru einungis íbúðir í húsum byggðum fyrir 1965 og einbýlishús byggð fyrir 1970
Mynduð og stílfærð af fagfólki Stadshem.


Kær kveðja
Stína Sæm

sumarstíllinn í eldhúsinu

July 16, 2013
Stílistar Skona hem eru alveg með sveitalega sumarstílinn á hreinu....

Eldhúsdraumar

April 4, 2013
Læt mig dreyma um hvítt, vintage eldhús,
 með opnum hillum og diskarekkum fyrir fallegann borðbúnað.
og að sjálfsögðu snögum um allt fyrir allar eldhúsgersemarnar, þessar gömlu slitnu og flögnuðu sem gefa eldhúsinu svo fallgt rustic lúkk.
Bloggsíðurnar Vita verandan, Lilla Blanka, Julias vita drömmar og Vibeke design eru allar með svona drauma eldhús... hvít, vintage og bara algjör draumur fyrir svona konu eins og  mig.

Hannes dagbok

Julias vita drömmar

Hannes dagbok

hidlesundet


G-style



Vita verandan
Vita verandan




Hannes dagbok
Lilla Blanka



Lilla Blanka

Petite Michelle Louise.

vibekedesign




abeachcottage.com

Beatehemsborg
Þegar ég skoða svona eldhús, langar mig mest til að mála allt eldhúsið mitt hvítt,
 rifa niður efriskápana og setja hillur, diskarekka og snaga um allt.....
en.....

Eldhússkáparnir mínir eru grænir og með mikið munstruðum flísum sem gefa eldhúsinu karakter sem ég er ekki á leiðinni að fórna, en það þarf nú að flikka smá uppá það. 
Svo er ég ekki að sjá það ganga upp á mínu heimili að flagga öllu því sem er í efriskápunum...
 sé ekki að allt eldhúsdóttið mitt yrði mjög smart í opnum hillum.
neeei ekki alveg.
En ég gæti alveg hugsað mér að eiga smá veggpláss í viðbót til að setja nokkrar hillur og svo sem eins og einn diskarekka.

En látum oss dreyma :)

Þið getið séð enn fleiri eldhúsmyndir hér á  pinterest

Hafið það sem allra best,
kveðja Stína



Auto Post Signature

Auto Post  Signature