Top Social

Nýtt í eldhúsinu

February 25, 2014
 Það hefur ekki verið eldhúsborð hjá mér alla síðustu viku og rúmlega það,
sonur minn og tengdadóttir fengu eldhúsborðið okkar, því ég frétti af einu gömlu sem hefur beðið árum saman í kjallaranum hjá tengdamömmu og það var alveg kominn tími til að breyta pínu til hér heima.



Fyrir mörgum árum fékk ég stóla frá tengdó sem ég að sjálfsögðu málaði  og þeir hafa verið hér í góðum félagskap með nokkrum öðrum af svipuðu tagi í mörg ár. Svo á laugardaginn urðu þeir loks sameinaðir með  borðinu sem upphaflega fylgdi þeim  og nú er bara að mála það líka svo allir séu í stíl og lifi hér í sátt og samlyndi.




Borðið er lítið, hringlótt og krúttlegt,
hæfir eldhúsinu mínu vel hversdags en hefur þann góða hæfileika að stækka þegar þörf er á.



Nýja krúttlega borðið var svo víkt á sunnudaginn með köku ársins 
og hvítir túlípanar eru að vakana og ætla að njóta nýrrar og spennandi viku með okkur. 

Hafið það gott í dag
kær kveðja 
Stína Sæm



4 comments on "Nýtt í eldhúsinu"
  1. Kemur svo flott út og gott að þekkja eina sem hendir engu ;) Gott að ég vissi ekki af því þá hefði ég örugglega verið búin að saga það sundur því mig langar svo í svona veggborð :) Hlakka til að sjá það þegar þú ert búin að mála það!

    Kv.Hjördís

    ReplyDelete
    Replies
    1. já Hjördís eins gott að þú komst ekki í það á undan mér haha. Hlakka til að gera það og græa :)

      Delete
  2. Mér finnst pínu flott að hafa borðið í öðrum lit en stólana :) En óháð því þá er þetta mjög fallegt :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. já ég er dáldið að pæla í að hafa amk annann lit með, eins og það sé annar litur undir og hafi verið málað einhverntíman áður ;) eða að hafa plötuna öðruvísi, td gráa. Það er allt mögulegt

      Delete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature