Top Social

Home sweet Motorhome

May 4, 2013
Ég rakst á húsbíl á netinu sem mig langar til að sýna ykkur,
og í þetta sinn ætlum við að skoða þrjár útgáfur af sama bílnum.
hann var bara gamall og þreyttur en fékk hvíta og pastellitaða yfirhalningu með krúttlegum, bráðnauðsynlegum smáatriðum.
og svo var honum breytt aftur og skipt algjörlega um þema í smaátriðunum sem eins og við vitum eru oftast stærstu atriðin.


kíkjum á nokkrar fyrir og eftir myndir af Home Sweet Motorhome:
Hann var ósköp venjulegur en gamall og pínu þreyttur húsbíll,
En allur bílinn var málaður hvítur að innann og dúllað með hvert smáatriði með pastellitum og blúnderríi.
borðkrókurinn/svefnherbergið í upphafi...
 og borðkrokurinn/svefnherbergið eftir .
eldhúsið fyri...
og eldhúsið eftir,
 meira að segja vaskurinn og eldavelin varð hvítt.
prívatið fyrir....

og svo prívatið eftir smá dúllerí.

Hvíta og fína eldhúsið frá öðru sjónarhorni,
algjört æði.






En ef einhverjum fanst yfirhalningin of mikið af rómantík og pastellitum,
þá hefur honum nú enn og aftur verið breytt og tekinn í gegn, 
í þetta sinn fór húsmóðirinn yfir allt með svörtum spreybrúsa,
sýnist að ekki miklu hafi verið skipt út, bara skipt um lit á öllu  og breytingin er allsvakaleg...
Allt er orðið hvítt og svart:



Hann var tekinn í gegn að utan í þetta sinn,








Þarna sjáið þið að það er hægt að fara margar leiðir og maður þarf ekki að vera veikur fyrir pastellitum og blúnderíi til ða gera upp húsbíl eða hjólhýsi.
Allt um bílinn á :




Já litlu atriðin skipta oft miklu og það er ótrúlegt hvað mikið er hægt að gera með spreybrúsa og smá efnisbútum.

Stína Sæm


1 comment on "Home sweet Motorhome"
  1. Þetta var all rosaleg breyting. Þetta leit út eins og frúin hafi ráðið breytingunum fyrst og svo hafi húsbóndanum þótt þetta allt of kvennlegt og síðasta breytingin hafi verið málamiðlun. En báðar mjög flottar.

    ReplyDelete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature