Top Social

föndrað saman

June 8, 2012
Hún Dossa hjá Skreytum hús, kom með frábæra áskorun um daginn fyrir allar pinterest óðar bloggvinkonurnar.

Áskorunin felst í því að: gera einhvern hlut sem þið eruð búnar að pinna til þess að DIY-a í framtíðinni.

Svo brást á þessi líka bongoblíða og ég hef kvorki verið að föndra né verið mjög dugleg hér á blogginu. 
En ákvað að skella einu litlu sætu verkefni hér inn, bara svo ég sé með áður en tíminn rennur út...það eru sko bara  3 klst eftir af tímarammanum þegar ég byrja á þessum pósti.

Mitt innlegg í þessa áskorun er sem sagt lítill og sætur, ofureinfaldur órói í kofann minn.
Falleg fyrirmynd;
 Fyrir nokkru síðan rakst ég á þessa mynd hjá  Huset ved fjorden og þar sem ég átti litla þreytta og frekar lítið smart lampaskerma skellti ég myndinni á pinterest til að eiga til seinni tíma.

Þegar áskorunin fór í gang var ég byrjuð og búin að hengja halfklárað verkefnið upp á "háaloftið" í kofanum....


það bara vantaði fallegann fugl eða fiðrildi til að klára verkið.
En svo rakst ég á súper falleg fiðrildi í vikunni, ætlunin var í upphafi að föndra pappírsfiðrildi, eða finn afugla eins og Dossa var með í afmælispóstinum, en þessi vildu bara svo endilega fá að vera með ;)  

ég skellti mér út í kofa í dag og smellti af einni mynd.. og úps batteríið kláraðist, svo það er engin nærmynd, en ég bæti betri mynd inn seinna.

Edit: 
Búin að hlaða batteríið og bæti við nýjum myndum.
 Svo ætla ég að prufa að vefja batterís seríu í þetta í haust þar sem það er ekkert ljós í kofanum, og   ég á annann skerm sem fær svipaða meðhöndlun en ekki alveg nákvæmlega eins, verða líklega flottir tveir saman.
Hvernig líst ykkur á þetta?

Ég linka  inná  dossag.blogspot.com kíkið inn og sjáið hin DIY verkefnin.


Stína Sæm



5 comments on "föndrað saman"
  1. Æ þvílíkt krúttlegt hjá þér, flott útfærsla á hugmyndinni - enn flottara en fyrirmyndin auðvitað - og flott hjá þér að ná að vera með!

    ReplyDelete
  2. Þetta er þvílíkt krúttlegt og flott!

    Kv.Hjördís

    ReplyDelete
  3. Mjög flott! Hvar fékkstu þessi fínu fiðrildi?

    ReplyDelete
    Replies
    1. ég sá þessi í blómaval í Njarðvík. Voru held ég bara gerð fyrir svona verkefni :)

      Delete
  4. Vá, æði, fiðrildin eru ómótstæðileg!

    ReplyDelete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature