Top Social

í eldhúsinu

September 22, 2011

Ég ætla aðeins að bjóða ykkur inn í eldhúsið til mín.
Ég hef  ekki gert neinar meiriháttar breytingar á eldhhúsinu, meira svona bara puntað og skreytt, á minn hátt.
hér er td te og krydd skápurinn sem ég er svo hrifinn af....

í góðum félagsskap með kaffivelinni dásamlegu.

þessari gömlu hillu var bjargað úr áralangru bið í kjallaranum hjá tengdó,
og eftir smá málningarmeðferð fer bara voða vel um hana fyrir framan þvottarhúsdyrnar...

þar sem hún er að sjálfsögðu puntuð með þvottaklemmum og eldgömlum þvottaskrúbb...
nema hvað!

Ekkert eldhús getur verið án bökunarkróks er það?

þar eru ýmis áhöld og uppáhaldið mitt.. gömlu hnifapörin sem amma og afi áttu
og eru mikið notuð skal ég segja ykkur!


Hér er svo eldhúsið í heild, með grænni innréttingu, eikarlistum og mismunandi flísum
(sem mér líkar reyndar mun betur  en bláa baðherbergið)
Eikarlistarnir eru fremur ofarlega á "paint me white" listanum mínum og þá virkar allt mun betur held ég, enda alltaf voða veik fyrir grænu... það er bara svo mikið ég ;)





 Takk fyrir komuna.


kveðja úr eldhúsinu
5 comments on "í eldhúsinu"
  1. Algerlega dásamlegt :)

    Fyndið, var einmitt að bjarga einni svona alveg eins hillu úr Góða Hirðinum, eins og þú ert með á bakvið hurðina. Ætli þetta hafi verið smíðaverkefni í skólum?? :)

    kv.Soffia

    ReplyDelete
  2. haha mætti halda. en ég veit að tengdó keypti þessa í einhverri búð hér í denn, en viðurinn var einmitt svona brenndur eins og við gerðum svo mikið í smíðinni :)

    kv Stína

    ReplyDelete
  3. Rosalega flott og gott að þú bjargaðir hillunni úr kjallaranum;)

    Kv.Hjördís

    ReplyDelete
  4. haha já Hjördís ég er eiginlega bara góði hirðirinn í kjallranum hjá mömmu þinni, hef amk verið svo góð að hirða ymislegt þar.
    hlakka annars til að sjá eldhúsið þitt :)

    ReplyDelete
  5. Haha já maður hringir bara í mömmu ef að manni vantar eitthvað;) Eldhúsið er allt í vinnslu og ég get ekki beðið eftir að þetta verði búið;)

    Kv.Hjördís

    ReplyDelete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature