Top Social

Sætur sunnudagur með súkkulaðiköku // Sweet sunday with chocolate cake

March 23, 2014

Bara stóðs það ekki að mynda þessa súkkulaðidásemd á eldhúsborðinu í dag.


Vonandi eigið þið líka sætann og góðann Sunnudag,
með sætri súkkulaði kveðju;
Stína Sæm


Pínulítið, heklað amigurumi kanínukrútt // tiny amigurumi bunny-cutie

March 22, 2014
Nýjasta ástríða mín í handavinnu eru heklaðar sætar fígurur, kallaðar amigurumi,
ég rakst á þessar fígurur á netinu og fór að safna þeim á pinterest,
vandamálið var bara að ég kunni ekkert að hekla, svo ég lagðist yfir heklbók Þóru  um daginn og eftir nokkrar illa gerðar prufur, er ég þó búin með eina kúrulega kanínu fyrir ömmugullið 
og var svo að klára eitt pínulíti krútt í dag sem mig langar til að deila með ykkur í kvöld.

Er hún ekki krúttlegust?
Mér finst hún æðisleg og svo skemmtilega skrítin öll hlutföll, sem gerir hana svona dásamlega krúttlega.

 Ég á að vísu ekki augu til að setja í hana en saumaði þau  í núna með svörtu garni og finst það bara koma vel út,

Sjáið bara hún er jafn sæt frá öllum sjónarhornum.

og hér sjáið þið hvað hún er pínuponsu lítil í lófanum á mér,
og þar af leiðandi fljótleg og auðveld.
uppskriftina finnið þið á allaboutami.com
og ég mæli alveg  með því að prufa, þetta er ótrúlega fljótlegt og gaman. Jafnvel fyrir byrjendur.
Enda gat ég, byrjandi þetta alveg og er bara rétt að byrja, með aðra í grágrænu á nálinni núna sem ég ætla að gera að bangsa,
 en með smá breytingu er hægt að gera ýmsar aðrar fígúrur. Langar líka að gera hana í öllum mögulegum litum og að sjálfsögðu gula fyrir páskana.


Hafið það sem allra best og góða helgi
kær kveðja
Stína Sæm

Frábær föstudagur

March 21, 2014
Fölnandi hvítar rósir í sætri póstulinskönnu á borðstofuborðinu buðu mér góðann daginn í morgun,
finst einhver fallegur shabby sjarmur yfir þeim svona,
og með gleði í hjarta fór ég af stað  þennann föstudag.

Eigið gleðilegann föstudag,
og megið þið klára vikuna með bros á vör.
Kær kveðja 
Stina Sæm

Glæsilegu heimili í Wyoming

Gæti hugsað mér að dvelja á þessu glæsilega heimili um helgina
í þessu magnaða umhverfi uppi í fjöllum í dásamlegu vetrarríki.


Verkefni í pastellitum

March 20, 2014
Ég skrapp í bæinn í vikunni, 
verslaði smá, naut mín mikið :)
já og hef haft nóg að gera síðan þá.
Svona leit einn innkaupapokinn út,
Garnið er í heklaðar fígúrur, kanínur, bangsa og fl, ótrúlega skemmtileg handavinna.
En getið þið mögulega giskað á hvaðan þessi poki kom?

Hér er svo smá innlit í föndurkassann minn í dag,
fullt af fallegum litum og mynstrum sem verða að klippimyndum og öðru fínerýi.
En það er nefnilega tómt barnaherbergi sem býður þess að amman komi með dót og dúllerí og geri það klárt fyrir litla dömu.

 og hér er lítil dásemd fyrir ömmugull að verða til.


Svo er eitt stk einbýlishús búið að vera í framkvæmdum í langann tíma.... allt of langann tíma 
er oft stopp þegar ég finn ekki nákvæmlega það sem ég hef í huga,
 en núna er það að verða tilbúið  og mig hlakkar svo til að deila með ykkur fyrir/eftir myndum.


En hvað segiði? 
Langar ykkur að sjá myndir þegar barnaherbergið og húsið verða tilbúin?
Eða er ég nokkuð ein um að fynnast þetta úber  spennandi?


Kær kveðja 
Stína Sæm



Fallegar vetrarmyndir frá ljósmyndaranum Ania // Beautiful winter photos from Ania photographer

March 19, 2014

Með bjartari dögum er ég  farin að bíða eftir vorinu og jafnvel  laukarnir eru byrjaðir að stinga sér upp úr moldini í garðninum hjá mér, en svo fór að snjóa hér hjá okkur í gær og langþráð,  falleg hvít breiðan, liggur yfir bænum mínum og gerir allt svo mikið fallegra ... hefði mátt vera í janúar eða febrúar,
 en ég nýt þess engu að síður og finst eiga vel við að deila með ykkur nokkrum fallegum vetrarmyndum frá ljósmyndaranum Aniu. 









 Á flicker síðu Aniu er mikið af einstaklega fallegum myndum sem er vel þess virði að renna í gegnum og  njóta.



Kær kveðja 
Stína Sæm




nýr og fallegur dagur

March 18, 2014
Eins og ég sagði ykkur um daginn þá er ég komin í nýja vinnu, 
sem þýðir nýr vinnutími, en ég   byrja að vinna ýmist kl 10 eða eftir hádegi.
 er sem sé heima hálfu eða heilu morgnana.
Dásamlegt að vakna og koma niður í eldhúdið baðað í dagsbyrtu

Svo ég sit ein í rólegheitum með kaffibollann og skelli inn einum hversdagspósti, 
og þarf ekki að taka myndir eftir vinnu deginum áður. 


En nú er kominn tími til að gera mig klára í vinnu,
 á stefnubót við öll fallegu blómin.


Eigið góðann dag í dag
kær kveðja 
Stina Sæm


Auto Post Signature

Auto Post  Signature