Top Social

Glerskápar

February 18, 2011
Margir flottir glerskápar sem ég fann á netinu, flestir hjá brabournefarm en aðrir bara hér og þar.








white-pitchers-and-chipped-painted-cupboard


Fallegt ekki satt?

my favorite

February 17, 2011
Í mestu uppáhaldi hjá mér er án efa síðan hennar Auðar Skúla. Mér finst bara allt sem hún gerir og allt sem hún skoðar, svo undur fallegt. Hún er með fyrirtækið kalklitir og eftir að hafa fylgst með blogginu hennar og fb síðunni, þá langar mig til að kalka allt hjá mér, veggina og fullt af húsgögnum og hlutum... og sjáum til.
held að þetta sé bara fallegasta baðherbergi sem ég hef séð, kalkaðir veggirrnir, textil púðar og dúlleríið á borðinu, allt verk Auðar.



langar í svona kertaarin... auðvitað


fallegur spegill með guðdómlegu handmáluðu munstri.
 Held ég sé loksins búin að ákveða hvað ég vill verða... og það er svona klár . Held það sé ekkert sem þessi kona gerir sem ég vildi ekki geta gert.

Stína bloggar

Ég hef undanfarið verið að missa mig í að skoða síður um heimili. En það er  ekki langt síðan ég uppgötvaði heilann hafsjó af síðum með gamaldags og rómantískum stíl, svona alveg eins og ég  heillast að.
Þessar síður eru eiginlega fyrirmyndin að mínu bloggi (hélt að enginn bloggaði lengur, en...) og vona að fleyri en ég eigi eftir að hafa gaman að þessu :) Hugmyndin er s.s. að pósta hér inn myndum sem ég finn á netinu af því sem mér finst fallegt og flott, benda á flottar síður, jafnvel koma með myndir sem ég tek og svo væri auðvitað frábært ef ég myndi nú afreka að klára að gera mitt heimili eins og ég vil hafa það og þá lofa ég að pósta hér inn myndum af því.

Auto Post Signature

Auto Post  Signature