Top Social

Hvað er milk paint?

August 17, 2016


Milk paint er ekki ný, fyrir ykkur sem vissuð það ekki, þó hún sé nýung hér á Íslandi, í raun er hún ein elsta gerð af málningu. Hún er duftkend, náttúruleg málning sem hefur verið til í þúsundir ára. Hún hefur fundist í píramídum Egypta og í hellamyndum og hefur lengi verið notuð í Bandaríkjunum á húsgögn, veggi, hlöður ofl. 

jelly cupboard
svo ef þú hefur séð eða ert svo heppin að eiga antíkhúsgögn frá Bandaríkjunum (100 ára eða eldri) með upprunalegu málningunni, er sú málning mjög líklega einhver gerð af milk paint.


Ókei svo það er þá á hreinu að Marian frá Miss mustard var ekki að finna upp milk paint... 
langt í frá.
Hún hinsvegar valdi að setja á markað sína eigin vörulínu með milk paint,
sem er Miss mustard seed´s milk paint.


Milk paint eða mjólkurmálning er ekki bara krúttlegt nafn útí bláinn. Hún er kölluð mjólkurmálning, því grunnefnið í henni er casein, sem er prótínið í mjólk. Hrátt casein lítur eiginlega út eins og þurrmjólk! 
(er í efstu sleifinni á myndinni hér að neðan)


Hráefnin sem notuð eru til að gera málningu úr mjólkurpróteíninu eru, talið frá toppnum, Casein (mjólkurprótin), krít, leir, oxíð (náttúruleg litaefni) og kalksteinn. Það er allt og sumt sem er í  MMS Milk Paint.
Fimm náttúruleg hráefni.



Hún kemur í duftformi, sem getur kanski virkað fráhrindandi fyrir þá sem eru vanir fljótandi, opna-dós-og-byrja-að-mála málningu

Ástæðan fyrir því að hún er seld í duftformi er að um leið og hún er blönduð, verður hún viðkvæm,  Í duftformi endist hún hinsvegar endalaust, sem er einstaklega hentugt, sérstaklega ef þú málar öðruhverju.

Þegar duftið er blandað við vatn til gera það að málningu, er endingartíminn um það bil vika, það fer eftir því hvernig hún er geymd. Þess vegna skaltu bara blanda lítið magn í einu eftir þörfum.

Nóg er að hylja afgang af blandaðri málningu með plastfilmu eða geyma í lokaðri krukku og bæta svo smá vatni og hræra hressilega þegar þú ert tilbúin til að nota hana aftur.

Svo, hvers vegna milk paint?

Hvers vegna ákvað ég að selja þessa gerð af málningu hér á Íslandi?
Ég er mjög hrifin af gamaldags málningu og finst gaman að gefa húsgögnum gamlan karakter og hér voru fyrir nokkrir skemmtilegir möguleikar, en ég var forvitin um milk paint sem ég hafði verið að fylgjst með lengi á netinu og  þegar ég prufaði hana fyrst varð ég heilluð af því hversu raunverulega gömul áferðin virðist vera og hversu góð tilfinningin var við að vinna með hana.
Milk paint hefur einstakann "karakter" og getur virkað eins og hún hafi verið á viðfangsefninu alla tíð, Hún er fjölbreytt og kúnstug og getur verið allt frá þvi að vera slétt og felld eða gömul og flögnuð allt eftir því hvað þú ert að mála og hvaða útlit þú ert að leita að. Möguleikarnir eru enn að koma mér á óvart og þar sem málningin heillaði mig, tel ég að hún geti sjarmerað fleiri hérna líka. 
Ekki er nú verra að hún er náttúruleg, inniheldur aðeins 5 hráefni og svo eru litirnir alveg gordjöss finst mér. 
Þýtt, breytt og stílfært frá missmustardseedsmilkpaint.com/what-is-milk-paint/

Skoðið alla 25 litina okkar: Litakortið 
og allar hinar frábæru vörurnar og verðlisti hér: Vörulínan
og ef þú vilt læra meira um málninguna... kíktu á þetta: Námskeið.


Vonandi var þessi bloggpóstur gagnlegur og mig langar til að gera fleyri bloggpósta uppúr áhugaverðum bloggpóstum frá missmustardseedsmilkpaint.com sem vonandi reynast líka gagnlegir.

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.
6 comments on "Hvað er milk paint? "
  1. Sæl, er mikið að spá í þessari málingu fyrir mublu sem ég ætla að gera upp. Hvað kostar einn svona poki hjá þér og hvað eru það ca. Margir lítrar.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Sæl einn poki kostar 4600kr og það verður ca einn liter af málningu, sem er jög drjúkt. Þér er velkomið að vera í sambandi í síma 8938963 eða senda skilaboð á facebook síðuna https://www.facebook.com/stinasaem/ þar sem ég er líklega sneggri í svörum. Hér er líka listi yfir allar vörurnar og verðlisti neðst á þessari síðu http://www.svomargtfallegt.is/p/mmsmilp-paint.html
      kveðja Stína

      Delete
  2. Er þessi málning lyktarlaus? Ég verð veik af venjulegri málningarlykt og líka þessari ofnæmisprófuðu frá Jotun svo það er spennandi að sjá svona valkosti þ.e ef þeir eru ekki með efnalykt.

    ReplyDelete
    Replies
    1. jaaa hún er ekki alveg lyktarlaus. það er engin lykt þegar þú málar en þú finnur lykt upp úr krukkuni með blandaðir málningu, nokkurskonar leirlykt finst mér. Enda eru hráefnin bara jarðefni. Kíktu bara til mín ef þú hefur tök á og athugaðu hvað þér finst.

      Delete
  3. Gaman að þessu �� fyrir 45 árum þá bara ég kalkstein á fjósa veggi og þegar fjósið var þrifið (kúa mykja upp um alla veggi) þá var notuð skafa og vegna kalksteins þá fagnaði allt auðveldlega af. Og kalkstein borinn aftur á

    ReplyDelete
    Replies
    1. það er áhugavert, þetta hef ég ekki heyrt áður. En ég veit að kalkið hefur verið notað í aldir til að mála hús að inna n og utan. og það er líka náttúruleg meigluvörn í kalkinu

      Delete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature