Top Social

egg lituð með nátturulegum litum úr eldhúsinu

March 27, 2013
jæja þá er síðasti vinnudagurinn á enda og ég komin í páskafrí og er þá ekki tilvalið að deila litlu páskadúlleríi með ykkur, einfalt, auðvelt og nátturulegt eins og mér finst það best.
En í fyrra sá ég alveg einstaklega falleg egg hjá Dreamy whites, sem hún litaði með grænmeti og ýmsu öðru úr eldhúsinu og litirnir voru alveg einstaklega nátturulegir og fallegir...

svo loks lét ég verða af því að prufa að lita nokkur egg, notaði það sem ég átti til; frosin bláber, turmeric (er viss um að karrý myndi virka líka) kaffi og híðið af rauðlauk.


ég lét þau bara liggja í leginum í stuttann tíma til að fá frekar daufann lit og maður minn hvað ég varð ánægð með útkomuna.
(þessi litarefni og svo mörg önnur og aðferðina er að finna hér)


Sjáið líka eggin hjá Dreamy whites 
þau eru algjör draumur í bláum, gulum, bleikum og marmara gráum litum.



Nú ætla ég að njóta næstu daga í notalegheitum með fjölskyldunni
og vonandi deila einhverjum fallegum  páskapóstum með ykkur í viðbót í fríinu
Hafið það sem allra best í dag og við ykkur sem eruð að byrja í fríi í dag
 segi ég; eigið notalegt pásakfrí

kveðja 
Stína Sæm
2 comments on "egg lituð með nátturulegum litum úr eldhúsinu"
  1. Sérlega falleg og vel heppnuð egg. Gleðilega páska!

    ReplyDelete
  2. æðisleg eggin þín Stína mín þau koma mjög flott út hjá þér

    ReplyDelete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature