"Dóra white" og "Dóra linen" eru ný vörulína frá Greengate og ég er nokkuð viss um að þetta undurfallega munstur í hvítum og gráum litum eigi eftir að slá vel í gegn, enda algjört æði og ekki er verra að þetta fittar svona ægilega vel með beige vörulínunni sem hefur verið á draumalistanum mínum í dáldinn tíma.
Hér er sýnishorn af Dora white/linen blandað saman við Naomi beige og er þetta ekki algjör draumur?
HVÍTT, GRÁTT, BEIGE OG RÓMANTÍSKT:
Auðvitað eru ótalmargar aðrar undurfallegar línur í nyja vörulistanum, litríkar og glaðlegar vörur sem munu aldeilis lifga uppá kaffiboðið á pallinum í sumar. Geri ráð fyrir að nota það í glaðlega sumarpósta seinna meir, þegar ég fer að horfa í áttina að meiri litum til að skreyta hjá mér en í dag er þetta að heilla mig mest.
Skoðið vörulistann þeirra hér
Hafið það sem allra best





























.jpg)


















