Top Social

Showing posts with label Café & bistro. Show all posts
Showing posts with label Café & bistro. Show all posts

Kíkt rétt aðeins á kaffihúsið Hendur á Höfn

May 14, 2018
 Ég gerði bloggpóst um kaffihúsið Hendur á Höfn á Þorlákshöfn árið 2015 eftir að við hjónin fórum þar um á smá bílrúnt um páskana. 
þið getið séð þann bloggpóst hér: Kaffihúsið Hendur í Höfn. 

En kaffishúsið var það allra krúttlegasta og fallegasta sem ég hafði komið inná. 
Gamli þjóðlegi sjarmurinn var þar allsráðandi með dásamlegum gömlum munum í hvítu blúnduslegnu umhverfi og þar voru sko fallegar hnallþórur borðaðar á fallegum diskum og  kaffið drukkið úr fallegum póstulínsbollum með blómamunstri.... 
og í svona umhverfi og með svona girnilegar veitingar var ég að upplifa allt það besta á einum stað.


Núna er Hendur í höfn búið að opna enn flottari stað í öðru húsnæði með dekkri stíl og ég hef fylgst spennt með framkvæmdum á samfélgasmiðlum eins og á story á instagram þar sem við sáum á bakvið tjöldin þegar allt var að verða klárt fyrir opnun um helgina.
svo þegar ég átti leið þar um á föstudaginn kom ég við til að fá mér kaffi og hressingu en var of fljót á mér því það var ekki búið að opna en allt á fullu að undirbúa opnunar tónleika og mat um kvöldið og formlega opnun á laugardeginum.


En þar sem ég var komin á staðin og allt var að smella saman fyrir opnunina langar mig til að deila með ykkur nokkrum smáatriðum sem ég fangaði meðan starfsfólkið var þarna í óða önn að gera klárt.



Hendur í höfn hefur sko ekkert glatað persónulega sjarmanum þó þau séu komin í stærra húsnæði og með dekkra og nútímalegra útlit, því öll dásamlegu smáatriðin eru bara komin í enn fallegra umhverfi og allt nýtur sín betur.


borðin voru dekkuð upp með undurfallegum hliðardiskum..


 og í eldhúsinu eru staflar af dásamlegum ósamstæðum diskum sem bíða eftir að vera bornir á borð, svo hver máltið er eins og hátíðarmálsverður á sunnudögum á íslenskum heimilinum...


en á Hendur í Höfn eru allar veitingar lagaðar  frá grunni úr fyrsta flokks hráefni og þegar ég kom á staðin ilmaði allt af nýbökuðu brauði sem var að koma úr ofninum.


Allt klárt fyrir matargesti kvöldsins og eins og þið sjáið þá nýtur gamli sjarmerandi stíllin sín enn betur í dökku umhverfinu 

Fallegu kaffibollarnir biðu tilbúnir eftir að þjóna sínu hlutverki þegar staðurinn opnaði næsta dag,
en eins og þið vitið kanski þá er kaffið bara svo mikið betra ef það er drukkið úr fallegum bolla.... 
það meira að segja ilmar betur því þú byrjar strax að virkja skynbragðið með því sjónræna,
og það er staðreynd!


 og jeminn sjáið bara þennan!
það er hugsað vel um mikilvægustu viðskiptavinina á Hendur í Höfn í fallegum og skemtilegu leikhorni.


Sjarmerandi smáatriðin eru bæði lítil og stór en þarna er sófasett sem er bara alveg eins og gamla mitt og gert upp með fallegu grágrænu áklæði.... eins og ég hefði bara valið það sjálf.




Ég er síðan alveg ofurspennt að koma þangað næst, fá mér að borða og njóta.
Þá lofa ég að gera almennilegt innlit um þennan fallega demant.

En þangað til fylgist með þeim á facebook.com/Hendurihofnkaffihus þar sem þið finnið fullt af myndum af opnuninni
eða á Instagram

Ég mæli me að kíkja í kaffi eða mat og upplifun á Þorlákshöfn
 ég get amk ekki beðið eftir að koma þangað næst.


Draumur um Morgunverð í Barcelona

May 6, 2016

Það er komin föstudagur og mikið væri ég nú til í að geta labbað úta töff kaffihús eins og Tarannà í Barselona og fengið mér morgunmat og kaffibolla og finna mannlífið í stórborgini  iða svona í vikulokin.



What should I eat for breakfast today?

 Marta Greber leiðir okkur um stræti Barcelona og Berlin og finnur áhugaverða staði til að fá sér góðann morgunverð og fangar stemninguna alveg ótrúlega vel með myndavelinni.













Tarannà,  Barcelona

Ég segi bara góða helgi kæru vinir.
Stína 

Bæjarferð á Fallegum Vetrardegi

February 12, 2016

Ég þurfti að skreppa aðeinns i bæinn í gær og naut þess algjörlega að keyra brautina á þessum fallega bjarta degi.

Þetta er bara dásamlegt.

Erindi mitt í bæinn var í eitt af glæsilegu og virðulegu skipstjórahúsin í Reykjavík, 
en þar var ég meðal annars að taka til og búa um fyrir hr skipstjóra

og um leið og ég setti hreint á rúmið,
 ýmindaði ég mér að vakna upp í þessu fallega húsi á  svona björtum vetrardeg, 
við fuglasöng .....

... og með þetta útsýni við höfðagaflinn.




Svo stoppaði ég aðeins í Hafnarfirði á leiðinni heim.

átti stefnumót við vinkunu mína á ofboðslega huggulegu og fallegu kaffihúsi sem heitir Norðurbakkinn bækur og kaffihús,


 en þar eru virkilega flottar bókahillur með fjölbreyttu lesefni með kaffinu.

og að sjálfsögðu er hægt að fá ymislegt annað með kaffinu en bara bækur, 
 td makkarónukökur, tertur, brauð og súpu svo fátt eitt sé nefnt.


 Ég á alveg pottþétt eftir að kíkja við þarna aftur, 
og við vinkonurnar eigum núna okkar uppáhlds stað.
Þarna er Svo margt fallegt að sjá og njóta, hvort sem það eru innréttingar eða smáatriðin sem skipta alltaf svo miklu máli.

Svo Margt Fallegt einnig á 



ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

laundromat cafe

February 5, 2016

Þegar ég fer í bæinn finst mér voða notalegt að detta inná The laundromat cafe,
staðurinn er skemmtilega retro og húsið sjálft eitt af þessum gömlu sjarmerandi húsum í miðbænum með hrikalega flottum loftlistum og deteilum sem njóta sín vel þarna, í smá kontrast við retro útlitið.
Ég hef bæði farið og fengið mér bara kaffi og köku eða samloku en svo er boðið uppá morgunmat og mér finst æðislegt að mæta á laundromat eftir gistinótt í bænum (gert það einu sinni) og fá mér vel útilátinn morgunmat/hádegismat.


Ég fann þessar myndir á netinu og þær sýna innréttingarnar mun betur en þær myndir sem ég hef tekið á staðnum svo við skulum bara láta myndiranr tala fyrir sig sjáflar

Ilmandi kaffibolli á Konsúll kaffihús

September 18, 2015

 Ég átti erindi í bæinn í gær og þar sem veðrið var svona glimrandi fínt þá tók ég smá rölt um miðbæinn og rambaði inná nýlegt kaffihús við Aðalstræti, sem er í þessum gamla vintage stíl sem er svo vinæll í kaffihúsum í dag,
Svona samansafn af gömlum húsgögnum og heimilislegir munir á veggjum,  eiginlega eins og að bjóða gestum og gangandi inná gamalt Íslenskt heimili og er alveg að virka í kaffihúsamenningunni.
Jaa heillar mig að minsta kosti.

Konsúll Café and bar 1881

Kaffihúsið Hendur í höfn

June 5, 2015
Um páskana fórum við hjónin á alveg dásamlegt kaffihús á Þorlákshöfn og ég tók alveg heilann helling af myndum, enda kaffihúsið algjört augnkonfekt, með fallegum smáatriðum við hvert sjónarhorn og allstaðar hugað að krúttlegheitunum.
 En svo kláraði ég ekki að fara í gegnum myndirnar á sínum tíma og var að finna þær aftur núna.
Svo ég ætla loksins að bjóða ykkur með á kaffhúsið Hendur í höfn.
Betra er seint en aldrei,
 segir máltækið og það á svo sannarlega vel við hér.



Hér koma svo fullt af myndum af þessu fallega kaffihúsi:

Nýtt kaffihús hér í nágrenninu // new coffe shop in my neighbourhood

March 21, 2015
 Its Friday, and I would love to end the week by going to a nice Coffe shop 

On one beautiful day last week,
(this one sunny calm day we've got this winter)
  I went to my new neighbour,
new cool café  just across the corner,

with good coffee and pleasant atmosphere.


Á fallegum degi í vikunni, 
þessum eina sólríka blíðviðrisdegi sem við höfum fengið í vetur,
 skellti ég mér á Stefnumót,
nýtt flott kaffihús sem er hér á næsta götuhorni,
með gott kaffi og notalegt andrúmsloft.
















Ef þið eruð í Reykjanesbæ mæli ég með þvi að kíkja á 
Kaffi Stefnumót sem er staðsett við stefnumótastaurinn á Hafnargötunni, 
þennann sem Maggi Kjartans syngur um.


Eigið góða helgi
kær kveðja
Stína Sæm



Auto Post Signature

Auto Post  Signature