Ég notaði daginn í gær í að
þvo þvott og hengdi sængurföt og dúka út á snúru, viðraði sængur, rúmteppi og púða á svölunum og hafði húsið opið upp á gátt, svo að hreinnt loft lék um heimilið.
Ég passaði að sjálfsögðu uppá að henga þvottinn út efitr kúnstarinnar reglum, eins og mamma kenndi mér
(þó þvotturinn minn hangi upp við húsvegg, inná pallinum)
Enda veit það hver húsmóðir sem á kvennaskólagengna móðir nú eða ömmu, að þvottinn verður að raða eftir settum reglum:
handklæði og rúmföt skulu hengd út í stærðarröð,
maður hengir paraða sokka saman ,ekki misstóra saman og í sitt hvorum lit....raða fallega á snúruna ;-)
EKKI hengja út nærbuxur (nema af börnum...)
Það á nefnilega að vera afslappandi og fallegt að horfa á fallegann þvottinn blakta í vindinum :)
já ég naut þess svo sannarlega að horfa á þvottin minn blakta fallega á snúrunni og veit fyrir víst að ég er ekki ein um að njóta þess.
Hamingjan felst í því að sjá fegurðina í því hversdagslega í lífinu.
Takk fyrir innlitið og endilega skrifið undir, það er alltaf jafn gaman að sjá comment.
Ekki er verra ef þið hafið reynslu af þvottasnúru reglum, eins og unga konan sem hengdi út þvott hjá tengdamóðir sinni og vandaði vinnuna vel, en raðaði ekki þvottinum eftir réttu stærðarröðinni svo tendamóðirinn planaði að fá sér skilti sem léti nágranna vita þegar það vark verk tengdótturinnar að hengja út og gerði mikið grín að.
Njótið dagsins, ég ætla svo sannarlega að gera það.
sumarkveðja;
