Top Social

Showing posts with label bloomingville. Show all posts
Showing posts with label bloomingville. Show all posts

Bloomingwille spring 2015

February 26, 2015
Aftur til fortíðar á vori 2015,
Ljúfir litatónar innanum plöntur og plöntumunstur, fallegir blómastandar og hengipottar
og mikið úrval af bastvörum og hrá nátturuleg viðarhúsgögn.
Hljómar eins og lýsing á heimili frá áttunda eða níunda áratugnum, 
en er úrvalið í vor og sumarlistanum hjá Bloomingwille.

Við skulum kíkja aðeins á hvernig þeir kynna nýjustu sumarlínurnar, með fallegum og björtum myndum, listilega stílfærðum og lifandi. 

Bloomingville haust 2013

November 14, 2013
Vetrarlínan frá Bloomingville er virkilega notaleg og kósý,
leirvaran er allra mest í uppáhaldi hjá mér, ég á þegar eina skál og einn tebolla sem ég gjörsamlega elska, litirnir og munstrið í leirvöru er fjölbreytilegt og heillandi og draumurinn er að eignast meira til að bæta í safnið.
Kíkjum á nokkrar fallegar myndir af þessari dásemdarvöru:



























kv
Stína Sæm




hjá Bloomingwille

October 10, 2012
 Ég er alveg heilluð af vörum frá bloomingwille  og þessum nátturulega og gamaldags stíl sem einkennir vörurnar og alla stílfærslu  á myndunum.
Undanfarið hef  ég verið undir áhrifum frá þeim þegar ég vel hluti inná heimilið og raða upp,
dreg framm viðarbretti, bastbakka og fleira og stilli því upp hér og þar.

ég á einn bolla úr þessari línu og alveg elska hann, er með hann í höndunum allann daginn, hvort sem ég er með te eða kaffi... er jafnvel að notann til að drekka vatnið mitt stundum.

En kíkjum á vörulistann þeirra og  sjáum hvað er í boði núna í haust;










Mikið finst mér þessi stíll áhugaverður og gaman að skoða svona fallega stíliseraðar myndir og fá hugmyndir að leikmunum og uppröðun.
Já ég hugsa virkilega um húsbúnað sem leikmuni og veit ég er svo sannarlega ekki ein um það,
æi við erum margar svo skemmtilega skrítnar að þessu leiti.
Eða kannast ekki einhver við það?


Stína Sæm




Auto Post Signature

Auto Post  Signature