Top Social

Hádegisverður á Matur og Drykkur

November 26, 2017
Við vinkonurnar vorum á bæjar rölti um daginn og fengum okkur  hádegisverð á 
Matur og Drykkur sem er  frábær staður til að kíkja á svona í hádeginu á þriðjudegi... eða hvaða dag sem er.

 En staðurinn er töff og skemtilegur og staðsettur í gamalli saltfiskverksmiðju  útá Granda.
í húsi sem var byggt 1924 í hefðbundum verksmiðju byggingarstíl þess tíma og notað sem saltfiskverksmiðja allt undir lok sjötta áratugarins. Byggingin er nú varðveitt sem sögulegar minjar og auk veitingastaðarins er þar líka sögu safn. Svo það þarf endin að efast um að þarna er vel haldið í gamla útlitið á bygginguni og allar skreytingar eru sögulegar og útfærðar á nútímalegan og frumlegan hátt.... 
rétt eins og maturinn sem er klassísk íslensk matargerð með nútímalegu ívafi.




Við fengum okkur allar lúðusúpuna með kræklingi, eplum og rúsínum.... 


já með eplum og rúsínum og ómæ hvað hún var ótrúlega girnileg og góð


Allt hráefni þarna er lofað að sé nýtt og fersk og kryddjurtir uppá borðum lofa svo sannarlega góðu


 Eftir súpuna fengum við okkur kaffi, sem var borðið fram í emeleruðum könnum og svo ofboðslega í takt við annað


og á veggjunum er þessi snilldar útgáfa af veggskrauti.... sveimérþá ég held ég sá farin á  nytjamarkaðs rölt í leit að gömlum hallærislegum eftirprentunum! Love it..


Kaffið okkar kallaði á eithvað gott svona á eftir súpuni og okkur langði í bara eina litla súkkulaðisneið til að deila... bara til að fá smá súkkuklaðibragð, en þá var okkur bent á þessar kleinur!!!
Í alvöru þetta er fullkomið, pínulitlar kleinur bakaðar á staðnum með ómótsætilegri mysingsósu og kardimommusykri.
must have!


Ef þið viljið skemmtilega upplifun í bæði mat og umhverfi 
þá mæli ég með þessum stað. 
Matur og Drykkur




ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.
Post Comment
Post a Comment

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature