Top Social

Teak kommóða flytur inn // Teak dresser moving in

July 17, 2014

Þessa gömlu fallegu teak kommóðu rakst ég á í kjallaranum hjá tengdaforeldrunum um daginn,
í ljós kom að kommóðan var keypt undir ungbarnafötin hans Gunna míns árið 1970 
 og mér sagt að hún væri hans og við mættum endilega fá hana.


Mér finst hún ótrúlega flott en var ekki alveg að sjá að hún passaði hér inn, 
enda ekki mikið af retro mublum hjá mér,  sáum hana helst fyrir okkur i kjallaranum.


En þegar þessi elska var borin hér inn og sett á mitt stofugolfið,
 passaði hún bara svona glimrandi vel og hér skal hún bara vera.

Hún fék smá þvott, var örlítið strokin með fínum sandpappír og svo borin á hana teak olia
og hún er bara sem ný.... algjört bjútý.



og svo er bara bara að raða á hana,
fyrir ofan kommóðuna hangir fermingarmynd af mömmu og brúðkaupsmynd af foreldrum hennar, 
á kommóðunni er meðal annars gamlir teak upptakarar frá ömmu og afa Gunna sem mér finst algjört æði.... 

já ég bara elska það að fá smá nýtt lúkk hér inn, og mér líkar það vel að blanda saman ólíkum stílum og tímabilum, hafa persónulega  hluti í kringum mig sem eiga sér sögu.




Góður kaffibolli... // a good cup of coffee..

July 15, 2014

....getur gert rigningardaginn mun betri.


Gamla kaffikannann fylgir matarstelli sem... eins og svo margt annað hér.... 
kemur úr geimslunni hjá tengdaforeldrum mínum.

Svo dásamlega hversdagsleg og hallærisleg,
og alveg fullkomin á svona rigningar þriðjudegi.


Loga mínum hundleiðist nú þessi myndaskapur í konunni... eða endalaus rigningin.

En sjáið þið nýju gersemina á heimilinu?
já það er fleira en gamlar kaffikönnur sem finnst í kjallaranum hjá tengdaforeldrunum,
Sjáum meira af þessari gömlu kommóðu sem nýlega flutti inn til okkar í bloggpósti morgundagsins.

Kær kveðja
Stína Sæm


Björt sumarhúsa stemning í innliti dagsins -- light summer-house feeling in todays house tour

July 14, 2014
Innlit dagsins er á fallegt heimili þar sem stíllin er ljós og látlaus  og hvert smáatriði finst mér vera heillandi og veitir innblástur ap uppröðun og samsetningu á heimilinu.











Allt um heimilið finnið þið á boligpluss.no





undurfallegt og litríkt hús á Spáni















Dásamlegi Skorradalur

July 12, 2014
Ætla að eiga góðar stundir með stórfjölskyldunni í Skorradalnum um helgina.

hér koma nokkrar myndir sem ég tók síðast þegar ég fór þangað:

Mikið hlakkar mig til að vakna upp í sveitinni okkar fögru.


Fleiri póstar úr Skorradalnum hér

Abode in Bombay: The Ace Hotel of India

July 11, 2014
Í Mumbai er fallegt hótel í gömlu sögulegu húsi,
 innréttað með gömlum fallegum munum og húsgögnum sem eiga sér sögu og einstakann sjarma.
Við ætlum að kíkja saman á þetta fallega hótel í dag:



Heillandi Bóndarósir- innblástur //charming Peonies - inspiration

July 9, 2014


laurenconrad.com
Skoðið með mér heillandi myndasyrpu af fallegum bóndarósum.

Auto Post Signature

Auto Post  Signature