Top Social

Showing posts with label retro. Show all posts
Showing posts with label retro. Show all posts

Heimilið í lit

August 14, 2018







kveðja

Plöntuást á föstudegi

April 15, 2016
 Ef mann langar að fjölga uppáhalds plöntunni sinni með þvi að setja afleggjara í vatn,
af hverju þá ekki að skreyta með því?


Vatnskrukka með afleggjurum er td svo mun fallegri í skemmtilegu plöntuhengi uppi á vegg en bara sitjandi í gluggasillu eða uppí hillu. 

 Svo ósköp einfalt....

 og bara ósköp sumarlegt og sætt á þessum fallega föstudegi.

Hafið það sem allra best í dag,
kær kveðja
Stína Sæm


ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

60s innlit í Ástralíu // Mid century house tour in Australia

June 29, 2015

Þetta líflega og skemmtilega heimili í Beaumaris er afrakstur mikillar ástríðu þeirra Annie Price og Jamie Paterson fyrir miðaldar hönnun,  og engu líkara en innlitið sé frá því 1950.

 This vibrant, joyful family home in Beaumaris has been a labour of love for mid century design enthusiasts Annie Price and Jamie Paterson, and their gorgeous daughter Dorothy (Dottie),















Photo – Eve Wilson.




Innlit í Danmörku // House tour in Danmark, in a beautiful retro and industrial style

April 13, 2015
Heima hjá Júlíu og Allan sjáum við hvernig industrial stíll blandast skemmtilega saman með nostalgiu retro.
Hverjum hefði dottið í hug að stál og tekk gæti verið svona fallegt saman?
Hér er ekkert verið að ofgera hlutunum en öllu er listavel komið fyrir svo að á hverri mynd er eithvað sem gleður augað.

















Allt um þetta fallega heimili má lesa á:


Kær kveðja
Stína Sæm.

Svo margt fallegt á
  Facebook og Instagram,

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, 
svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best. 

Góðan daginn

October 20, 2014



Eigið góðann dag í dag 
kær kveðja 
Stína Sæm


Góður kaffibolli... // a good cup of coffee..

July 15, 2014

....getur gert rigningardaginn mun betri.


Gamla kaffikannann fylgir matarstelli sem... eins og svo margt annað hér.... 
kemur úr geimslunni hjá tengdaforeldrum mínum.

Svo dásamlega hversdagsleg og hallærisleg,
og alveg fullkomin á svona rigningar þriðjudegi.


Loga mínum hundleiðist nú þessi myndaskapur í konunni... eða endalaus rigningin.

En sjáið þið nýju gersemina á heimilinu?
já það er fleira en gamlar kaffikönnur sem finnst í kjallaranum hjá tengdaforeldrunum,
Sjáum meira af þessari gömlu kommóðu sem nýlega flutti inn til okkar í bloggpósti morgundagsins.

Kær kveðja
Stína Sæm


Heklað vagnteppi úr ömmudúllum // crochet granny square blanket for my vintage pram

June 25, 2014
Bloggpóstur í máli og myndum, um heklað vagnteppi 
  Frá hugmynd til enda.

Þegar ég fékk þennann dásamlega gamla 70´s barnavagn, sem er af tegundinni Silvercross Berkley, 
en gengur bara undir gælunafninu hippinn hér á heimilinu, 
fanst mér alveg bráðnauðsýnlegt að hann þyrfti sitt eigið teppi, eithvað sem er í stil við þennann gamla fallega hippa.
En fyrst var ég með nokkur hekl verkefni á nálinni svo það þurfti að bíða aðeins.
Loks tók ég til hendinni og byrjaði á ömmudúllunum,
fyrsta dúllan var til reynslu og fékk ekki að vera með en svo gekk all vel.
Garnið er ullargarn, bæði afgangar og keypt í teppið, 
grunnlitirnir eru brúnn, vinrauður, ljósbrúnn og hvítur,
svo var hinum ýmsu litum bætt við í nokkrar dúllur hver.
Alltaf var ljósbrúni liturinn síðastur.


Svo raðaði ég dúllunum reglulega á vagninn til að sjá hversu margar dúllur ég þyrfti, hvernig litirnir kæmu út og hvaða liti mætti bæta við osfr
Mér fanst að vísu verkefnið vera endalaust en eftir því sem þær urðu fleyri gekk þetta hraðar,
enda algjör byrjandi og notaði allt of litla nál ;)

Ég gerði 42 dúllur sem ég svo heklaði 4 og 4 saman með ljósa litlum.
Svo heklaði ég eina hvíta umferð utan um hverja fjóra og heklaði þær saman í leiðinni 
(eins og kennt er í heklbók Þóru).
svona leit svo teppið út með alla ferninga komna saman,
áður en það er þvegið eru hvítu samskeytin frekar upphleypt eins og sést á myndinni en það lagast.

Eftir að vera þvegið og lagt til þerris.
Bara nokkuð snoturt ekki satt?
Ég valdi gula litinn í kannt utanum teppið, 
fanst guli  í teppinu njóta sín svo vel við vagninn.


Er hæst ánægð teppið og finst það vera gamla hippanum til mikillar prýði
Gott að hafa það þegar litla gullið mitt er í ömmuheimsókn og tekur stuttan blund inni.
(veit ekki hvernig ég færi að án þess að hafa vagninn til taks)

teppið fer vagninum vel en er líka hlítt og gott,
 þegar litla gullið fer út að sofa af al-íslenskum sið.


Jæja þannig varð nú teppið til,
ekki amalegt hjá byrjanda!




Líflegt og litríkt innlit á mánudegi

May 26, 2014



Laugardagsinnlit á fallegt sænskt heimili í retro stíl

May 17, 2014
 Ég ætla að breyta útaf vananaum og kíkja með ykkur í heimsókn á laugardegi, 
en ég féll alveg fyrir þessu eldhúsi þegar ég sá það á netflandri  í gærkvöldi,

ég er alveg ótrúlega heilluð að svona retro eldhúsum
og þá sérstaklega þessum hallandi efri skápum sem mér leist nú ekkert á hér fyrir nokkrum árum.



En röltum aðeins um íbúðina og skoðum okkur um:







og svo endum við á þvi að fá okkur sæti úti á þessum notalegu svölum.

Ég þakka ykkur fyrir að kíkja með mér,
eigið góða helgi,
kær kveðja 
Stína Sæm

Stadshem er fasteignasvefur í Stokkholmi 
sem sérhæfir sig í gömlum byggingum með sál og sögu.
Þar eru einungis íbúðir í húsum byggðum fyrir 1965 og einbýlishús byggð fyrir 1970
Mynduð og stílfærð af fagfólki Stadshem.



Auto Post Signature

Auto Post  Signature