Top Social

Notaleg haust stemning

November 12, 2013











Fallegt innlit í Noregi // House tour in Norway

November 11, 2013
House tour in beautiful home, with old fashioned interior and warm neutral style  in Norway
-------------------------------------
Mánudagsinnlit á fallegt, gamaldags og hlílegt  heimili í Noregi
















 Foto: Sveinung Bråthen

Eigið góða viku frammundan.
Kær kveðja
Stína Sæm



Sætur, en kanski pínu drungalegur sunnudagur

November 10, 2013
Ég sit inni á þessum sunnudegi og hlusta á veðrið berja á húsinu,
úti er rigning og brjálað rok, pínu drungalegur dagur.

Myndasafnið sem ég valdi að deila með ykkur þennann sunnudaginn er dáldið í takt við drungalegt veðrið,
Þessi myndastíll gengur oft undir nafniðu "dark photography" í matarbloggheimum, en vinnuheitið er "Chiaroscuro" sem þyðir light-dark á itölsku og er þekkt úr listheiminum sem cantrast milli birtu og skugga í málverkum sumra af gömlu meisturunum, eins og td Carvaggio.

chokladdoppad-kaka


kveikt á kertum í skammdeginu

November 9, 2013

Litrík veggfóður í barnaherbergið

November 7, 2013
Nú styttist í að ömmustelpan mín komi í heiminn,
bara mánuður í settan dag og amman hefur aldrei haft jafn gaman af að skoða myndir af fallegum barnaherbergjum.

Veggfóður í barnaherbergi eru að heilla alveg sérstaklega þessa dagana og nóg er að finna af því á netinu....


í þetta skipti tók ég saman myndir af litsterkum veggfóðum í retro stíl,
dálítið eins og það sem var í gangi þegar ég var lítil.

Hvítt herbergi með einn veggfóðraðann vegg þar sem barnarúmið stendur,
er aldeilis málið,




Blátt, líflegt og alveg svakalega munstrað strákaherbergi 



Dásamlega retro veggfóður, eins og ég man eftir þeim úr barnæsku í gulu og brúnu og hjólið... 
er það ekki æði?
 Ég fann nákvæmlega svona hjól í Góða hirðinum og það er sko vinsælasta leikfangið á mínu heimili  (hjá litlum gestum ekki heimilisfólkinu) og svo er það bara svo endalaust krúttlegt.


Hressilegar uglur og hér er fallega Juno rúmið í líflegum lit...
Strákalegra verður það varla, blátt með enn blárri bílum.

Þetta finst mér alveg voðalega heillandi og hlýlegt,
svo brúnt, gult og nátturulegt,

hér er svo sama veggfóðrið með trjánum og vá hvað ég væri til í þennann fallega vagn,
enda konan með vagnadellu á háu stigi,

Hér er sko ekki verið að spara gula litinn,  en mér finst eithvað svo sjarmerandi við svona gömul og stækkanleg rúm, og ekki klikkar veggfóðrið hér

Svo krúttlegt eithvað.






Bloggið Huset ved fjörden er í miklu uppáhaldi hjá mér og þar er allt heimilið í þessum fallega stíl en barnaherbergið finst mér algjört æði,




og svo má ekki gleima öllum fallegu gömlu krúttlegu hlutunum sem hægt er að para með svona gamaldags litríkum veggfóðrum, möguleikarnir eru endalausir og svo skemmtilegir.
myndir: pinterest

og þetta var pósturinn um skemmtilegu og litsterku veggfóðrin,
svo eru það þessi rómantísku og blíðlegu.... 


Nú er ég farin í bæinn með tengdadóttirinni að skoða veggfóður,
þar til næst,
Hafið það sem allra best.

Kveðja,
Stína Sæm


Mánudags-innlit á bjart og fallegt heimili

November 4, 2013








stylist: cleo scheulderman 
photography: jitske hagens
images: vtwonen



Eigið góðann mánudag .
með kveðju
Stína Sæm


haustuppskeran

November 1, 2013

Auto Post Signature

Auto Post  Signature