Top Social

Showing posts with label veitingastaður. Show all posts
Showing posts with label veitingastaður. Show all posts

Fjölskyldu stund i Friðheimum

August 10, 2018

Tengdamamma átti afmæli um verslunarmannahelgina svo við hittumst öll í  Friðheimum og fengum okkur að borða saman á mánudaginn. 
Ef þið hafið ekki komið þangað þá mæli ég með því, 
það er allt stórkostlegt við staðinn... sérstaklega ef þú ert hrifin af tómötum ... og náttúru og fallegu umhverfi.

Þetta er svo sannarlega upplifun




Svo blómlegt og fallegt þarna fyrir utan....


og systurnar blómlegar og fallegar líka.


Sælkeravörur og matarminjagripir á borð við tómathressi, tómatgrillsósu, gúrkusalsa og tómatsultu er til sölu í gestastofunni  og  í Vefverslun Friðheima.

Ekki bara ljúffengt góðgæti sem fæst þarna heldur er þetta svo ómótstæðilegt og fallegt..
tilvalið sem gjafavörur



Rauði þráðurinn í eldhúsi Friðheima er tómatar í hinum ýmsu myndum, en fjórar tegundir af tómötum eru ræktaðar í gróðurhúsunum þar sem málsverðurinn er borinn fram innan um tómatplönturnar. 
Matarupplifun sem ég mæli með.


meira að segja tómatbjór!
á þetta verð ég að prufa.









litla krútt


Ég var sú eina af okkur öllum sem var ekki með tómatsúpu..
og var sko ekki svikin af pizzuni minni...

sem að sjálfsögðu var með tómat og svo sklipti ég ferskt basil yfir .





afmælistendó, mágkona mín og myndarlegi Ísar 


Blómið okkar hún Soldís Lilja


 fallegar mæðgur
 Feðginin spá í bíflugurnar 


 Sóleyin litla









Bíflugukassarnir voru ótrúlega spennandi en í þessum kössum eru mikilvægustu starfsmenn Friðheima... án þeirra væru engir tómatar fyrir okkur á plöntunum.








Kíkið á heimasíðuna þeirra og kynnið ykkur starsemina:


Steikhúsið...

November 23, 2012
... er nýr veitingastaður í Hamarshúsinu
á móts við smábátahöfnina, sem mig langar til að sýna ykkur í dag.
Elsku eiginmaður minn bennti mér á heimasíðuna þeirra eftir kvöldverð þar með vinnufélögunum en hann vissi svo sannarlega að frúnni myndi líka staðurinn,
 og það var engin spurning að þarna var sko kominn næsti bloggpóstur til að deila með ykkur á föstudegi.
Staðurinn er skemmtilega innréttaður, í mátulega hráum industríal stíl en þó svo hæfilega notalegur og hlílegur. 
Þar sem ber steipan spilar skemmtilega saman  með hráum viðnum og leðri.... 
svona rustyc nature eins og það er kallað. 




ohh my...Sjáiði ljósin í loftinu!

  
og skrautið sem prýðir veggina,
algjör snilld.

já og þessar hillur... 
mig langar í svona í kjallarann hér heima ;)

Svo held ég að ég þurfi ekkert  að segja hvað mér finst um þennann vínrekka...


hann er búinn til úr tré vínkössum og fullur af rauðvíni. 
þarf ég að segja meira?
jebb langar líka í svona í kjallarann haha



Hjarta staðarins er svo Kolaofninn frá MIBRASA,
mikið rarítet.  MIBRASA ofninn er hin fullkomna
samsuða nútímatækni og fornrar hefðar sem skilar
af sér safaríkri steik án hliðstæðu. 
jahá!!

og talandi um steikur.....

Hvernig steik má bjóða ykkur?
Eigum við kanski aðeins að kikja á matseðilinn?!










Eigendur Steikhúsins eru hjónin Tómas Kristjánsson
og Sigrún Guðmundsdóttir 
ásamt Níels Hafsteinssyni framreiðslumanni og Eyjólfi Gesti Ingólfssyni matreiðslumanni.
Allt um steikhúsið finni´ði á síðunni þeirra Steik.is  og svo er að sjálfsögðu hægt að fylgjast með Steikhúsinu á fb.


Vonandi eigið þið ánægjulegt og gott föstudagskvöld og þið sem farið út að borða í kvöld;
 verði ykkur að góðu og njótið vel :)

Stína Sæm




Auto Post Signature

Auto Post  Signature