Top Social

Showing posts with label shabby chic. Show all posts
Showing posts with label shabby chic. Show all posts

Rómantísk BrúðkaupsVeisla á Valdirose

October 22, 2016





















ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

shabby chic draumahús

February 16, 2016
Jeminn eini hvað þetta hús er dásamlegt,
þetta er alveg fullkominn shabby chic stíll, ofboðslega sjúskað og líka mátulega dömulegt með dúlleríi og pastellitum.

Ég ýminda mér að eiga eitt svona úti í sveit sem orlofshús.....
Þar sem ég eyði frítímanum, sit úti á verönd í sól og blíðu að lesa, tek á móti gestum með nýbakað bakkelsi og alltaf blaktir hvítur þvottur á snúruni.






madeinpersbo.blogspot.is
Já þetta finst mér pínu sjarmerandi
og eitt af þessum húsum sem hleypa ýmindunaraflinu á smá flug...
þarf svosem aldrey mikið til hjá mér.
En hafið það sem allra best í dag,
Kær kveðja úr shabby chic draumaveröldinni.
Stína Sæm




Svo Margt Fallegt á 

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

shabby chic með Rachel Ashwell

March 6, 2014
Shabby chic er sérstakur heimilisstíll sem mér finst dáldið heillandi,
eins og nafnið gefur til kynna er stíllinn annars vegar sjúskaður: allt á að virka gamalt og rustic,
og hinsvegar stelpulegur; pastellitir, pífur og blóm kemur þar sterkt inn.


Rachel Ashwell er án efa Shabby chic drottningin,
er með verslanirnar Shabby chic og sölusíðu með allskyns shabby dásemdir og  the Prairie b&b, sem er dásamlegt gistihús í gömlu býli sem samanstendur af nokkrum gömlum húsum í hinum fullkomna shabby chic stíl.

Ég valdi nokkrar myndir í þennann póst sem mér finst lýsandi fyrir shabby chic stílinn, og allar myndirnar eru fengnar frá Rachel Ashwell

pífur og blúndur í mildum pasteltónum, pínu slitnar og sjúskaðar,
örlítið fölnaðar rósir, blúnda og gamalt póstulín  á gömlu slitnu borði með gylltu munstri,
falleg borðstofa  í einföldum shabby chic stíl, hér er ekkert verið að ganga overboard í stílnum

tjull og meira tjull i fallegum litum og sjáið dásamlegu herðatren!

sjúskuð borðplata, fölnandi blóm, póstulínsvasi og vintage veggfóður í bakgrunni,

Dásamleg ljósakrónan, útsaumaði stóllinn og þessi guðmómlega vængjahurð, eru bara fullkomið myndefni í þennann póst.






Dásamleg rúmföt með pífum og blúnduverki og sjáið rúmgaflinn sem þarna glittir í.... dásemd!

Sjúskaður skápur í fallegum lit, fullur af vintage póstulíni er svo sannarlega mér að skapi.


Safn af gömlum dásamlegum mottum er að finna í verslun shabby chic ásamt mörgum öðrum sérvöldum gömlum gersemum.

Hér eru svo nokkrar myndir frá The Prairie:







Að sjálfsögðu fáið þið svo linka með póstinum,
 svo þið getið skoðað enn  meira ef þið eruð jafn heilluð og ég

Sölusíðan með alls kyns shabby dásemdum, bæði gömlu og nýju:
Gistihúsin á sléttuni;
og bloggsíðan

Hafið það sem allra best
kær kveðja
Stína Sæm


í sveit og bæ

June 19, 2013
 Í sveit og bæ er netverslun með alveg dásamlega fallegar felligardínur, púða og rúmteppi í rómantískum og sveitalegum stíl eins og ég bara get varla staðist, með frönsku skript mundstri, blúndum og pífum.... algjör dásemd. 


Pastellitir og pífur er það sem þarf til að fullkomna shabby chic stílinn 

Fallegu blúndupúðarnir úr Mormor línunu, svo æðislega ömmulegir og sveitó


Svo er hægt að fá fallega bastvöru  fyrir sumarið á pallinum..... 

bastbakka í nokkrum stærðum og æðislegar kertaluktir.



og hér er að finna úrval af fallegum gardínum,




og að sjálfsögðu er hægt að fá púða í stil,


og aðra sem eru ekki í stíl við gardínur en bara algjört æði einir og sér eins og þessi geggjaði saumavelapúði.
Svo eru alls kyns ómótstæðilegt punterí .....

eins og þessi hjörtu  og kramarhús,
ó guð hvað ég gæti hengt þetta út um allt hér heima
og held þetta séu alveg ómissandi aukahlutir í bústaðinn.

Kíkið á í Sveit og bæ á facebook og netverslunina þeirra.

kær kveðja
Stína Sæm




Auto Post Signature

Auto Post  Signature