Gyllti liturinn hefur aðeins verið að læðast inn til mín aftur,
það byrjaði nú með gamla marokkó borðinu sem ég nældi í á háaloftinu hjá mömmu og pabba og er í kjallaranum sjá
hér
en kopardótt og gyllt hefur oftast fengið að finna fyrir spreybrúsum, málningarpenslum eða bara látið flakka.
Svo hefur nú gyllt verið að koma sterkt inn með rustic nature stílnum sem er svo áberandi í skandinaviskri hönnunn og að sjálfsögðu smitast ég með og var sko fljót að grípa þessa kertastjaka þegar vinkona mín bauð mér þá úr geymslunni hjá sér. Sá þá alveg fyrir mér í forstofunni, nú ef ekki þá mætti bara mála þá ;)
eins og sést hér þá er nú dáldið um gyllt í forstofunni hjá mér fyrir,
en þar sem höldurnar á fataskápnum eru gylltar og gamaldags (eiginlega bara hallærislega gamaldags) þá setti ég gylltar höldur á þennann skóskáp þegar ég málaði hann fyrir nokkrum árum. er nú ekkert voða sátt við þessar höldur.. aðeins of fínar fyrir frúna í dag, en þetta passar alveg svona.
hér er svo smá svona gróft og hrátt,
eldgamall vínkassi í aðalhlutverki með greinarkransi, könglum og trélukt
og ullarteppi á gömlum kolli
(sem bíður þolinmóður eftir upplyftingu og nýju lífi sem td náttborð)
já það er alltaf gaman að breyta og skreyta og með nokkrum hlutum er komin smá vetrarstemning sem tekur á móti okkur í forstofunni.
HOME
SWEET
HOME