Top Social

í frí með Tyrifryd

March 19, 2013
Tyrifryd er ein af uppáhalds bloggsíðunum mínum,
og ekki bara er það fallegt heimili sem við fylgjumst með þar heldur eiga þau líka fallegann bústað þar sem fjölskyldan getur farið í frí og notið sín í fallegri nátturunni.

Nú er páskafrí frammundan svo eigum við ekki að skella okkur í innlit í bústaðinn þeirra, sem er skemmtilega innréttaður í gamaldags, notalegum stíl.










Allar myndirnar eru frá tyrifryd.com


Væri ekki notalegt að gera eytt páskafríinu í svona sveitarómantík?
Taka með sér smá páskaglingur og súkkulaðieggin ómissandi.

Eigið góðar stundir.
kveðja;
 Stína Sæm

Góðann daginn ;)

March 18, 2013

Mánudagur er góður dagur til að gera ný plön og hefja nýtt upphaf....

þess vegna keypti ég mér þessa fallegu bók um helgina og nú á að fara að skrifa matardagbók,
Takk fyrir kærlega!!
 Nú skal taka málin fastari tökum, meiri hollusta þyðir meiri orka, einbeitning og velliðan, svo ég sit með nýju bókina og nyjar væntingar.

Hafið það gott í dag.
Kær kveðja;
Stína Sæm

Páskalilju tilraun.

March 17, 2013
Mér finst laukblóm eins og páskaliljan alveg vera málið þessa dagana og eins og þið sáuð kanski í bloggpóstinum í gær, þá gæti ég hugsað mér að hafa þá út um allt og ekkert lítið af þeim. 
og þar sem páskaliljur vaxa í beðunum hjá  mér á svæði sem ég er ekki mikið að njóta nema á sumrin, þá fanst mér alveg tilvalið að færa þá bara inn.

og eins og þið sjáið á þessum myndum þá hafði nú farið misvel um þá þarna úti í beði, sumir voru jafnvel að brjóta sér leið frammhá grjóti svo sprotarnir voru sumir frekar beiglaðir og skakkir.



En eins og þið sjáið hér á myndunum sem ég tók svo degi eftir að þeir komust inn í hús þá réttu þeir aldeilis úr sér og hafa rokið upp á einum sólahring.
Mér líkar bara vel þetta ófullkomna útlit á þeim, finst þeir svo villtir og skemmtilegir og á eflaust eftir að næla mér í fleyri þegar nær dregur að páskum svo þeir séu þá í blóma á réttum tíma.
Ætla að athuga hvernig þessir vaxa og blómstra.

Fyrir þau ykkar sem eruð á þessari ófullkomnu línu eins og ég og þolið lauka og stilka sem bera þess merki að hafa kúrt á kafi í mold allann veturinn, þá mæli ég með því að prufa og um að gera að hafa ekkert of miklar áhyggjur þó þeir séu beiglaðir og skakkir, þeir eru svo þakklátir fyrir að komast inn í hlýjuna að þeir rétta úr sér, slétta úr blöðunum og fara að vaxa á fullum hraða.
Svo er bara að hreinsa þá og þurka og planta þeim aftur út í beð í haust.

Mikið hlakkar mig til að gera páskalegt hjá mér í vikunni með þessum elskum.
og þegar þær fara að blómstra ...
jeminn hvað það verður þá fallegt og páskalegt í kotinu.


Gangi ykkur vel að grafa upp laukana í garðinum,
með kveðju frá hinni laukóðu húsmóðir úr Keflavíkinni.

Stína Sæm


sætur sunnudagur með // sweet sunday with; Half baked harvest


Half baked harvest er matarblogg með margar áhugaverðar uppskriftir og það sem er ekki verra... að þar er svo margt fallegt að sjá.
Eins og áður veljum við sætabrauð og kökur fyrir sætann sunnudag,
 annað bara gengur ekki er það?
Nema hvað að á þessari síðu eru nokkrar ofurhollustu uppskriftir sem gaman er að geta haft með svona svo það sé eithvað sætt og gott fyrir alla.

whole wheat 30 minute mini cinnamon buns and they are healthy

just like nature valleys oats n honeys bars actually they are better
whole wheat chocolate chip banana bread pancakes with a vanilla coconut glaze
no bake quinoa crumble bars
homemade sea salt soft pretzels with buffalo cheddar cheese sauce
beignets filled with chocolate then drizzled with chocolate sauce
Þið getið séð fleyri uppskriftir Half baked harvest í máli og myndum  hér  
og fylgst með öllu saman með hjálp facebook og pinterest.

Njótið vel og eigið sætan og góðann sunnudag
með sætri hveðju
Stína Sæm



blómlaukar hjá Vibeke design

March 16, 2013
Ég gróf upp nokkra lauka í garðinum hjá mér í dag,
svo er bara spurningin hvað konan ætlar að gera við uppgrafnar hálfsprotnar páskaliljur með laukunum á!

Hér eru eitt dæmi um laukóðann bloggara sem ég hef verið að skoða og fá hugmyndir fra´:

















já það er sko bara ekkert undarlegt við það að ég hafi farið útí garð í dag, 
vopnuð garðskóflu og skál, og farið að krafla í gegnum hálffrosna moldina til að ná upp laukunum. 
Held þeir eigi eftir að njóta sín mun betur uppí á borði hér inni í hlíjunni.




Kær kveðja
Stína Sæm

my beautiful butler

March 13, 2013

Karfa, full af tauþurkum og silfri, dúkar, vínkassi og blómavasi, stendur saman á vínskápnum í borðstofunni og allt saman vaktað af þjóninum eftir Sossu.
Á það ekki pínu vel saman?

Silfurskeiðar og servettuhringur með upphafstöfunum mínum...
hmm ég er ekkert mikið fyrir að pússa silvur eins og sést en þetta fer bara svo vel svona á stafla af nýstraujuðum tauþurkum.


Þakka ykkur öllum fyrir að kikja í heimsókn til mín og fyrir frábær og ómetanleg viðrögð sem bloggið er að fá frá ykkur. Hver einasta heimsókn og comment er mér dyrmætt.
 og það bara verður ekki of oft sagt.
Takk fyrir að vera hér.
Kærleikskveðja
Stína Sæm


Innlit á Ránargötuna til Sissu ljósmyndara

March 12, 2013

Innlitið okkar í þetta sinn er inná fallegt Íslenskt heimili,
sem er í þriggja hæða raðhúsi á Ránargötu í Reykjavík.
Heimilið finst mér einstaklega fallegt  og hér er  nostrað við hvert smáatriði og öllu smekklega komið fyrir svo hvert einasta sjónarhorn á heimilinu er eins og fallegasta listaverk.


























og ef þér líst vel á húsið sjálft þá er Þetta fallega hús núna til sölu 
 á Fasteignir.is og hér má sjá heimilið í Heimsókn með Sölva 

kær kveðja 
Stína Sæm


Auto Post Signature

Auto Post  Signature