Top Social

Góður ágúst dagur á pallinum

August 19, 2015

Fyrr í vikunni minnit Facebook mig á mynd sem ég setti inn í fyrra af heiðbláum himni yfir kofanum okkar góða,
Ég deildi gömlu  myndinni (sjá neðst í póstinum) og fór svo út á pall, fannst sumarið vera búið í ár, þurfti aðeins að taka til eftir rok og rigningu síðustu viku, en uppgötvaði að veðrið var bara ósköp milt og gott, 
með bláann himin yfir kofanum okkar góða.

Svo ég deili nýju myndunum til að minna mig á að enn er sumar, gróðurinn er grænn og enn er hægt að gera sumarpósta.

Bara enn notalegt og kósý.


Hér að ofan sést svo munurinn á pallinum en mig hefur lengi dreymt um að mála allt tréverkið í kringum pallinn hvítt eins og treverkið á húsinu. Veit það verður meiri vinna að halda því við...
en það er svo fallegt.
En kannsi er ég að skoða of mikið af norskum og sænkum  húsum á netinu.

Eigið góðann dag í dag
kær kveðja
Stína Sæm

Svo margt fallegt á
  Facebook og Instagram,

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, 
svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best. 

Sumarlegt og einfalt dinnerborð

August 14, 2015
Þegar von er á gestum er alltaf gaman að nostra smá við matarborðið,
og þar sem ég vil helst hafa það frekar einfalt og er ekki mikið fyrir að ofsreyta borðið
þá er gaman að geta farið bara út og tínt fersk blóm og jafnvel greinar af blómstrandi runnagróðri,
 eins og ég gerði um síðustu helgi þegar við fengum góða gesti í mat.





Þetta er bara ofureinfalt og fljótlegt,
en mátulega sumarlegt og fínt.

Eigið góða helgi,
kveðja
Stína Sæm

Svo margt fallegt á
  Facebook og Instagram,

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, 
svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best. 

Plönturnar mínar og ég

August 13, 2015

Hér á heimilinu hefur myndast nýtt samband,
þetta samband er mjög gagnvirkt og gefandi þar sem báðir aðilar njóta þess,

Ég er að tala um mig og allar nýju grænu pottaplönturnar mína,

Ég hlúi að þeim, vökva þær, gef þeim næringu, umpotta og kem til afleggjurum,
þær launa svo aðhlynninguna með fegurð sinni og vexti.


Í þessari gömlu fallegu súputarínu eru td afleggjarar sem ég tíndi af öðrum plöntum sem ég á, 
í vor lágu þarna nokkur blöð af pepperoniu í kringum pínu afleggjara af nafnlausum þykkblöðungi...
Nú dafnar þau vel saman og mynda næstum samfellda græna skreytingu sem ég fæ að njóta.
og elsku súputarínan mín hefur enn einu sinni fengið nýtt og fallegt hlutverk og útlit.
Dásemd!

Hafið það sem allra best
kær kveðja;
Stína Sæm og 
pottaplönturnar.


Lítill fallegur Cavalier í pössun

August 11, 2015
Meðan systir mín naut sýn í sumarfríi í fallegri paradís á ítalíu, var litli hundurinn hennar í pössun hér hjá mér


Hann Ýmir er Cavalier eins og Logi minn, en ekki nema ársgamall,  einstaklega fallegur, smágerður, fjörugur og alveg dásamlega kelinn og barngóður. Þegar hann var ekki á hlaupum úti í garði með Loga, þá vildi hann bara vera í fanginu á mér að kúra  og alltaf til í að leifa börnunum að knúsa sig.


Síðasta daginn sem hann var hér hjá mér smellti ég mér út með myndavelina og settist í grasið meðan þeir spókuðu sig um í garðinum. og furðulegt nokk þá náði ég mun betri myndum af litla fjörkálfinum.


Heimilishundurinn Logi er 8 ára töffari, 
hann er allra hugljúfi en lét þann litla alveg vita hver ræður ferðinni...
en þó voru þeir óaðskiljanlegir í þessar tvær vikur og voru hér úti allan daginn,
hálfgerðir útigangshundar bara.















Já ok þetta eru dáldið margar myndir af þessu litla skotti,
en hann er bara svo mikið krútt.... 
og svo fallegur, svo það má.

Hafið það sem allra best.
Með kveðju
Stína Sæm

Svo margt fallegt á
  Facebook og Instagram,

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, 
svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best. 

Hversdags á mánudegi

August 10, 2015
Jæja þá er ný vika byrjuð,


lifið er að detta í sínar venjulegu skorður 
og ég sit  með tölvuna og kíki aðeins yfir bloggið, 


Það er amk orðið langt síðan ég hef setið á mánudagsmorgni með kaffibollann og tölvuna og unnið með bloggið og myndir.



Kanski er það blómvöndurinn sem stendur á eldhúsborðinu sem vakti mig aðeins til lífsins og ég dró fram myndavelina og tölvuna,

En um helgina rölti ég hér um hverfið með klippur
og náði mér í villt og afskiptalaus blóm í  þennann sumarlega blómvönd....



sem stendur á eldhúsborðinu og býður góðan daginn og minnir á að sumarið er langt í frá búið,



ég byrjaði þessa viku amk vel því litla ömmugullið gisti hér og fór spennt og ákveðin á leikslólan í morgun, en hjá henni er leikslóla gangan rétt að hefjast, er enn í aðlögun.
Amman myndaði litla gullið þegar hún stóð tilbúin við útidyrnar og boraði í nefið, ekta lítil leikskólastelpa..... 
myndirnar hinsvegar tókust ekki.... ég bara finn þær ekki...
en það er allt í lagi, daguinn byrjaði vel, með loforð um nýja byrjun og góða tíma.

Vonandi eigið við góða viku,
og allir að verða endurnærðir og úthvíldir.
Eigið góðann mánudag.

kær kveðja 
Stina sæm

Svo margt fallegt á
  Facebook og Instagram,

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, 
svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best. 

Sumarmyndir af ömmugullinu.

August 8, 2015
 Við Íris Lind kíktum í heimsókn til Helgu Erlu sem bjó áður hér í næsta húsi við mig,
þar sem sonur minn og Íris Lind búa núna. 
Þetta var á fallegum degi, sól og hlítt úti og Helga, sem er snillingur með myndavelina tók þessar fallegu myndir af gullinu mínu  úti í garði.







Myndir: helgaeg


Svo margt fallegt á
  Facebook og Instagram,

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, 
svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best. 

flott heimili í gömlum skóla

August 5, 2015











Auto Post Signature

Auto Post  Signature