Top Social

Showing posts with label gamalt. Show all posts
Showing posts with label gamalt. Show all posts

í litilli búð í Noregi.

July 25, 2011





mikið væri ég til í að eiga þessa gömlu sætu barnakerru,
sé hana fyrir mér á tröppunum hjá mér með einhverju sæti í eins og td ljóslukt 

þetta gamla hjól myndu flestir segja að sé bara drasl...
en er það ekki flott svona með líflegum fallegum blómum í körfu,
amk er þetta fallegt myndefni

búðin heitir Othilies gårdshandel og myndirnar og fleyri til finniði hjá Jeanettes kreative utbrudd.




á nýja vinnustaðnum

May 18, 2011
Ég var að byrja í nýrri vinnu, þar sem ég er húsfrúin á nýju og flottu kaffihúsi í Kvikunni í Grindavík.
Þar eru syningarnar Jarðorkan og Saltfisksetur Íslands,sem er frábær sýning um saltfiskverkun á Íslandi, og auðvitað samansafn af augnkonfekti fyrir konu sem er veik fyrir öllu sem er gamalt og ryðgað.

Já lífið er saltfiskur sagði einhver.

ég var með myndavelina í veskinu svo ég ákvað að smella af nokkum myndum...

... af skóm (hefði ekki viljað vinna í fiski í þessum, en væri til í að eiga þá upp á punt)

 ...af þoski í hjólbörum.... vá hvað ég væri til í að eiga þessar.

fullt af ryðguðu og gömlu dóti.

þarna er verkfæri sem ég hef oft notað á mínum fiskvinnuferli en finst það virka ævafornt þarna... hvað er ég þá?

Einsog við seum komin nokkuð mörg ár aftur í tímann.


extra superior - with head

saltfiskþurkun, utandyra í kjól og með svuntu brrrrr






já ekki amalegt vinnu umhverfi er það?



sjáumst við höfnina í sumar.
En þar til.. hafið það sem allra best

Auto Post Signature

Auto Post  Signature