Top Social

Showing posts with label Lloret de Mar. Show all posts
Showing posts with label Lloret de Mar. Show all posts

Strandbarinn í fríinu mínu -- zoo beach club -- a beachbar from my vecation

May 28, 2015
Zoo beach club er strandbar sem við fórum á í fríinu okkar síðasta haust,
og mig langar til að deila með ykkur núna, 
 þegar sumarið lætur bíða eftir sér hér heima og ástvinir senda mér myndir úr sólarlandaferð sinni.
Ég læt hugann reika til hlýrra minninga úr mínu fríi og nú fáum við okkur bjór og smárétti samam í sól og hita og ómótstæðilegri fegurð allt í kring.

barinn er við ströndina á Llored de mar á Spáni,
og er svo skemmtilega innréttaður, allar innréttingar úr veðruðum við og fullt af skemmtilegum vintage dóti og hlutum útum allt, og allstaðar var allt í réttu litunum: matseðillinn, leirtauið og jafnvel öskubakkarnir... allt fittaði vel inn og gladdi augað.
Myndirnar sem ég tók eru margar enda allt svo fallegt og heillandi, vonandi njótið þið með mér

Tröppugangur

October 18, 2013
Það er eithvað heillandi við tignarlega stiga og tröppur.... 
ja sumar tröppur amk.


eins og td allar hlöðnu steintröppurnar sem urðu á vegi mínum á spáni .....


og voru bara svoo heillandi .....
og skemmtilegt myndefni.









Þar með geng ég inn í helgina í síðum sumarkjól,
með sól í hjarta
 og kveð í bili

Stína Sæm


Göngutúr á Spáni

October 15, 2013
Við hjónin fórum í stutta sólarferð í haust, 
nánar tiltefið þá áttum við 10 sæludaga á Lloret De Mar á Spáni,
í dásamlegu veðri og fallegu umhverfi í gömlum litlum bæ.



Við byrjuðum á því fyrsta daginn að fá okkur göngutúr í þessum dásamlegu tröppum sem liggja meðfram klettum við sjóinn.


Þarna í klettunum var svo bar þar sem við settumst niður, fengum okkur einn kaldan og ég sat gjörsamlega hugfangin af umhverfinu og fegurðinni allt í kringum okkur, með hljóðin i briminu fyrir neðan okkur í bland við dásamlega tónlist svo við stöldruðum nokkuð lengi við og bara nutum augnabliksins.



oh já endalaus fegurð og notalegheit.

Kær kveðja 
Stína Sæm




Auto Post Signature

Auto Post  Signature