Top Social

á tröppunum ........

October 20, 2012
.....á fallegum laugardegi.

Þessi fallegi haustdagur er tilvalinn fyrir útikósý,
með heitt kaffi, teppi..
og ekki gleyma hlýjum sokkum




 Eigið góða helgi kæru vinir

Stína Sæm

úti að borða

October 19, 2012
Akurat núna væri ég til í að vera að fara út að borða,

á fallegann og notalegann stað..

og ekki væri verra ef veitingastaðurinn væri á hóteli á Spáni.

Svo hvað segiði um að við kíkjum saman út að borða 










Þennann notalega og hlýlega veitingastað fann ég á  nicety.livejournal.com
eins og svo margt annað fallegt sem ég deili hér á síðunni.


Eigið notalegt föstudagskvöld
heima eða að heiman
Stína Sæm




nýtt sjónarhorn í holinu

October 18, 2012

Í holinu hjá mér er miðja heimilisins, stigarnir uppí ris og niður í kjallara eru þar og eldhúsið og stofan renna saman við holið,
þar leika börnin sér þegar þau koma í heimsókn og hundurinn á sinn stað úti í glugga.
Þar vorum við líka fyrst með sjónvarpið áður en við opnuðum niður í kjallarann, svo að gamli sjónvarpskápurinn er þar enn, bara kominn í nyjann búning og með nýtt hlutverk (sjá hér)


Þar sem við áður sátum og horfðum á sjónvarpið, er núna komið forláta gamalt borð og hilla. 

Hillan er fyrir gamlar fjölskyldumyndir og hitt og þetta hefur verið á borðinu. m.a.  karfa sem safnar hinu og þessu smálegu og undir borðinu er blaðakarfa sem er alltaf yfirfull.....
jebb ég er ekki sú allra skipulagðasta, og reyni oftast eins og ég get að fela það fyrir ykkur svo að þetta er alveg nýtt sjónarhorn hjá okkur.

En ég tók mig til og gerði smá lagfæringar..
setti bakka með kertum á borðið og púða í stólinn og mér líður mun betur
Stenslana keypti ég í Púkó og smart 
(gossið mitt þaðan er allt að tínast inn á myndir hérna smátt og smátt)
og fallegur penni og  minnisblokk er þarna við hendina líka svo litla smádraslið sem safnast saman í körfunni hverfur eiginlega ;)

og bakkin stelur svo senunni er það ekki?
Kerti, gömul skál fyrir smá snakk til að læðast í, umslag sem ég prentaði út á Graphics Fairy
og S fyrir StinaSaem.blogspot.com að sjálfsögðu.

Takiði eftir fallegasta gluggaskrautinu mínu?



“Think of all the beauty still left around you and be happy.” 
― Anne Frank

Stína Sæm



hjá Hübsch, falleg dönsk hönnun

October 17, 2012

Mig langar til að kikja í vetrarlínuna 2012 hjá Hübsch
hönnunin er dönsk og stíllin er þessi kósý nordic stíll 
með  bland af rustic nature,  hlílegum textíl, smá industrial og gler í mildum pasteltónum 



I want to take a look at Hübsch winter collection 2012
the products are designed in Denmark with Nordic cosiness,
a mix of rustic nature with warm textiles,  glassware in powdered pastel tones and a bit of industrial style.











Samkvæmt heimasíðunni  hubsch.com er hægt að fá vörurnar hjá;
 Sirka á Akureyri 
 Heimahúsið í Síðumúla 

Stína Sæm



bleikur október - breast cancer avareness#4

October 16, 2012




redbubble.com




Stína Sæm



Ítalskt sveitabýli

October 15, 2012
og þá er það vikulega mánudagsheimsóknin,
  þessa vikuna ætlum við að skella okkur til Ítalíu.
og kikja þar í heimsókn á fallegt sveitabýli.




















Stína Sæm




Auto Post Signature

Auto Post  Signature