já það hafðist.
Skápurinn er loksins orðin tilbúinn
og ég er svo montin af honum að hann er myndaður í bak og fyrir eins og smábarn
Hér sjáum við beint framan á hann:
hann var pússaður niður, trégrindur í hurðunum teknar úr og hænsnanet sett í staðinn, grunnaður nokkrar umferðir, málaður með hvítri kalkmálningu og svo pússað létt yfir til að fá smá þreytta áferð á hann.
hér sést svo aðeins hvernig áferðin er.. slitin horn og brúnir
og svo skoðum við hann frá hinni hliðinn.
Kíkjum inn í hann:
körfur og krukkur, með prjónadóti, kertum og serviettum
og svo gróf ég eftir skólatösku bóndans og málaði. Hún geymir pappírsdót,
sem var í, ekki svo mjög smart möppu áður.
Ég á alveg pottþétt eftir að fikra mig áfram með innlitið á honum, á Ikea kassa sem má alveg mála aftur og setja í staðinn fyrir körfurnar, eða bara skókassa .
en hér á þessu heimili fá hlutir ekki varanlegann samastað, allt má færa og breyta.
svo skoðum við betur ofan á hann:
hér verður aldeilis gaman að stilla upp og breyta og færa.
Naut þessa í gærkvöldi að kveikja á kertum og gera svona fallega haust uppstillingu
svo bara verð ég að sýna ykkur skápinn með umhverfinu
eins og sést hér, þá er hann eiginlega miðpúnkturinn á miðhæðinni
með eldhúsið öðru meginn og stofu og borðstofu hinu meginn.
eldhússtólana málaði ég hvíta fyrir mörgum árum, meðan allt var enn í dökkum viði hjá mér
skáparnir í borðstofunni voru svo keyptir hvítir en annað var ýmist í dökkri eik eða úr oliubornum dökkum við,
. Svona get ég verið með allt úr sitthvori áttinni, þarf ekki að endunýja húsgögn sem komin eru úr tísku og munstraða sófasettið, antík borðstofuborðið og annað alvöru gamalt dót nýtur sín vel án þess að heimilið verði eins og byggðasafn
hér er svo litla borðið sem ég málaði í sumar
og þau eru aftur komin í stíl og eru ægilega sátt saman.
og svo síðast en ekki síst:
Flottur er það ekki?
og þá er það bara að halda áfram að mála, er td bara búin með tvo af sex borðstofustólum og svo eru alveg georgeus svefnherbergishúsgögn úti í skúr og fallega löguð innskotsborð frá ömmu og afa, sem bíða eftir meðferð.. en þau verða ekki hvít! Spurning hvort það gerist á þessu ári eða því næsta
Svo skulum við nú ekki tala um draumana um kalkmálaða veggi og hvíttuð gólf og.......
úff nú lokar hr G fyrir netið :/
Takk fyrir að kíkja við
GEGGJAÐ!!!! Vá hvað hann er flottur og hvað þetta er allt flott og fínt hjá þér :)
ReplyDeleteTil lukku með "nýja" skápinn!
kv.Soffia
Vá enn flottur :o)
ReplyDeleteég er líka rosalega hrifin af máluðu töskunni ...
Kv Ásthildur.
hrikalega flottur hjá þér og ég er svoooo að fíla mustraða sófasettið hjá þér... tók einmitt eftir því. þetta er mjög vel heppnað hjá þér.
ReplyDeleteÞakka ykkur innilega. Skjalatöskuna málaði ég bara með venjulegum grunni og það virkar bara vel á leðrið, springur ekkert, og kemur bara svo vel út. og takk Birna, mér finst sófasettið æði, en því miður er það orðið svo slitið að ég bíð eftir að pompa á gólfið úr sófanum, en ég bara get ekki hugsað mér að skipta því út.
ReplyDeletetakk aftur
stína
Váááá hvað hann er flottur hjá þér, vel gert kona
ReplyDeleteMjög flott hjá þér:)
ReplyDeleteVá :) þetta er æðislegt hjá þér, engin smá breyting á skápnum, elska að fylgjast með blogginu þínu :D
ReplyDeleteKv Guðný Bj
Hvernig grunn notaðir þú á skápinn?
ReplyDeleteHvernig var hann á litinn ?
ég nota hvítann akrílgrunn. og fer frekar tvær til þrjár þunnar umferðir heldur en eina þykka. Þannig loðir grunnurinn betur við.
Deletekveðja Stína
Hrikalega flott hjá þér :) en hvernig málningu notaðir þú ??
DeleteVar hann vaxborin skápurinn fyrir??
já hann var vaxborinn.
DeleteÉg málaði hann svo með hvítri kalkmálningu, en hún er líka til í ótrúlega fallegum litum. Þú færð svo gamla og flotta áferð með þeirri málningu og það er svo auðvelt að pússa niður td hornin og álagsfleti til að fá slitið útlit. kíktu á http://www.facebook.com/pages/auskula/189755807717?ref=ts þar sérðu allt um kalklitina.
kv Stína
I love the new look, great job!
ReplyDeleteGigi @ Old World Patina
Your cabinet is so pretty! Thanks for sharing at Silver Pennies Sundays. x
ReplyDelete