Ég rambaði nýlega á netverslunina fullbloomcottage.com sem er með húsgögn í old french og Gustavian stíl sem hún Loretta velur sjálf og eru gerð upp, að mestu í mildum gráum tónum og svo er hún með ekta dásamlegt shabby chic linen; rúmföt, púða, gardínur, dúka og margt annað dásamlegt.
Hún er með bloggsíðu sem heitir fullbloomcottage.blogspot.com/ og fékk hjartað í mér til að slá nokkur aukaslög þegar ég fletti fyrst í gegnum hana.
þar fann ég þessar myndir:
oh ég væri svo til í svona slitna pífu á rúmið mitt.
finst það svo fallegt
grófleikinn í efninu er alveg fullkomið mótvægi við væmnina í pífunum.
Snilld!
svona útskorið rúm í mildum grá/beislituðum tón og pífudót um allt..
er sko alveg að virka á mig í svefnherberginu.
svo undurfallegt
og þessi skápur... vá!
já það er bara að fara inná fullbloomcottage.com og næla sér í svona dásemdir.
Jeminn!! Þetta er draumur!! Takk fyrir að benda okkur á þessa síðu! ;-)
ReplyDeletekv. Helga Lind