Top Social

fallegur rustic garður

August 27, 2013
Smá garðadásemd svona í lok sumars:







Myndir: examiner.com


Eigið góðann dag
kveðja, 
Stína Sæm

sætur sunnudagur með ljúfmeti og lekkerheit

August 25, 2013
Ég hef áður boðið upp á sætann sunnudag með bloggsíðunni Ljúfmeti og lekkerheit,
en síðan er bara svo lekker og myndirnar svo fallegar af öllum sætu kræsingunum að ég einfaldlega fæ ekki nóg.






Ég ákvað að vera ekkert að setja linka á viðkomandi bloggpósta með myndunum, leifi ykkur bara að njóta þess að fletta í gegnum öll lekkerheitin á ljufmeti.com og finna það ljúfmeti sem þið girnist helst og svo er bara að skella í eina sæta og góða.


 Njótið vel 
og eigið sætann og góðann sunnudag.
Kveðja 
Stína Sæm


sætur afmælis sunnudagur - sweet birthday sunday

August 18, 2013



roostblog.com.......twenty-eight

sweetapolita.com....... campfire delight 6 layer rich chocolate cake

thesepeasarehollow.blogspot.com.......triple chocolate ganache torte
thefauxmartha.com......carrot-cake

burnettsboards.com


Eigið góðann dag í dag.
Kveðja frá afmælisstelpu :)





Á ferðalagi.

August 17, 2013
jæja þá er hver að verða síðastur að skella sér í útilegu,
sumarið er brátt á enda en
sólin skín og fuglarnir syngja, 
svo það er bara að skella í tösku,
 tjaldið og prímusinn út í bíl og leggja íann.
















Eigið góða helgi kæru vinir
kveðja 
Stína Sæm




Héraðskólinn á Laugarvatni, fallegt hostel með sál og sögu.

August 16, 2013

Eitt af fallegustu húsum landsins, Héraðsskólinn á Laugarvatni hefur gengið í gegnum miklar breytingar og er loksins opinn almenningi að nýju. 


Þessi sögufræga bygging, sem er 1600 m² að stærð var hönnuð á sínum tíma sem skóli af einum frægasta arkitekt Íslands, Guðjóni Samúelssyni, árið 1928. Skólinn gegndi hlutverki menntunar og menningar allt fram til ársins 1991, en þá var skólanum lokað. Það var Jónas frá Hriflu sem fékk hugmyndina að stofnun skólans á sínum tíma. Draumur Jónasar var að skólinn yrði nýttur allan ársins hring og yrði glæddur skemmtilegu lífi.


 Í (nýja) Héraðsskólanum verður boðið upp á gistingu og veitingar í einstaklega fallegum gömlum stíl í anda skólans þegar hann fyrst opnaði.
Þar sem hver hlutur nýtur sín og segir sína sögu,
Þar er einnig upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn og fróðlegt bókasafn, með fræðiritum úr öllum áttum og á mörgum tungumálum.










Svo er fátt sem jafnast á við fallega nátturuna á Laugarvatni og stutt í allar okkar bestu nátturdásemdir.


Já væri ekki fullkomið að staldra við í þessu eldgamla og fallega húsi og fá sér kaffi og meðþví, þegar farið er hin sígilda gullna hring, nú eða gista í þessari dásemdarparadís, staldra við og njóta alls þess sem umhverfið hefur uppá að bjóða.

Kær kveðja
Stína Sæm

Upplysingarnar fékk ég á heradsskolinn.is þar sem hægt er að nálgast allar gagnlegar upplysingar um þetta dásamlega hostel og bóka herbergi að sjálfsögðu.
Myndirnar voru fengnar á fb síðu Héraðskólans.




hversdagskaffi á fimmtudegi

August 15, 2013
þegar rigningin streymir niður gluggana getur verið gott að sitja inni í hlíjunni með gott kaffi, jólaköku eins og amma gerði og eiga bara notalega stund heima.



Pínu ömmunostalgia í þessu í dag,
sem er bara dásamlegt finst mér.
Eigið góðar stundir
og gangi ykkur allt í haginn.

Kær kveðja
Stína Sæm






dans og gleði með Kristínu Vald

August 13, 2013
  Mig langar til að deila með ykkur alveg undurfallegum myndum sem vinkona mín og bloggarinn Kristín Valdimarsdóttir hefur verið að birta á blogginu sínu í sumar.
Myndirnar eru af dætrum hennar sem eru duglegar að sitja fyrir hjá mömmu sinni og bregða á leik fyrir myndavelina hvort sem það er í fallegum kápum í snjónum, með krúttlegar svuntur við piparkökubakstur  eða í sumarkjólum á fallegu blómlegu engi.

Kíkjum á sumarmyndirnar sem hafa birst á blogginu hennar í sumar og eru svo yndislega bjartar, glaðlegar og sumarlegar .


















Myndirnar hér að ofan eru eiginlega ein mynd úr hverjum gleðipósti sumarsins,  ég mæli með því að kikja á bloggið og skoða myndasyrpurnar í heild sinni og finna gleðina steyma um ykkur, 
 jafnvel að fletta langt aftur í tímann og skoða hvernig mæðgurnar njóta hverrar árstíðar og hátíða.
það verðru sko enginn svikinn af því.

Kær kveðja
Stína Sæm

innlit á fallegt heimili á Selfossi

August 12, 2013


























myndir fengnar hjá: fasteignir.is



Kær kveðja
Stína Sæm


Auto Post Signature

Auto Post  Signature