Top Social

inná lifandi markaði

January 27, 2012

Þegar ég kom inn í Lifandi markað í fyrsta sinn eftir breytingar (áður maður lifandi) horfði ég alveg hugfangin í kringum mig á alla flottu trékassana og afgreyðsluborð og veggi sem er unnið úr vörubrettum.
Svo það er ekki bara það að þarna seu lífrænar vörur heldur eru innréttingarnar að mörgu leiti endurunnar líka.

Afgreyðslan í veitingastaðnum er töff í svona industrial stíl..

á kertabakkanum

January 26, 2012
tók þessa mynd af kertabakkanum mínum um daginn,
og finst myndin eiga vel við núna þegar kveikt er á kertum hjá mér um allt hús og allt á kaf í snjó úti.

Ég byrja þennann dag á því að kveikja á kertum, tölfunni og kaffivelinni, fæ mér svo morgunmat og kaffi og  blogga smá.


Eigið öll góðann dag.
kveðja;

hjá Ib Laursen

January 25, 2012
Nú eru að streyma á markaðinn vorlínur hjá öllum flottu heimilis-vörumekjunum. Fallegar heimilislínur í björtum sumarlitum og með ný munstur, og svo margt fallegt sem boðar okkur hækkandi sól og lengri daga með tilheyrandi garðveislum og litagleði.
En það eru nokkrar Danskar vörur sem eru alveg ægilega inn hjá flestum bloggurunum sem ég fylgist með. vörur sem ég vissi ekki af áður en ég fór að skoða heimilisbloggin og  auðvitað er ég orðin alveg veik í þetta allt saman.

Eitt af þeim er Ib Laursen, sem er með úrval af fallegum vörum...
 fyrir eldhúsið;







þeir eru komnir með þetta nýja fallega munstur, sem væri alveg dásamlegt að skreyta með á bakka á eldhúsborðinu.. er alveg að sjá þetta fyrir mér.

Fyrir stofuna;
Hér erum við alveg að tala saman.. náttúrulegir tónar, tré, strigaefni og gler




Fyrir konuna sjálfa;
ljóst og rómantískt.


og fyrir garðinn;
grófur leir, sink og tré vörur.




já þetta er nú það sem ég hef fundið úr sumrlínunni frá Ib Laursen, vörulistinn er ekki kominn á netið enn, en ég bíð spennt eftir að skoða hann í heild sinni þegar þeir birta hann á síðunni.
En það er nú eitt og annað sem ég gæti hugsað mér að eignast í þessari litlu upptalningu.





sæl að sinni
kveðja;

í kryddkassanum

January 24, 2012
'I horninu hjá eldavelinni hefur einum af mandarínu kössunum verið komið fyrir með oliu, kryddi og ýmsu öðru sem ýmist passar ekki í kryddskúffuna eða við einfaldlega viljum bara hafa við hendina.
Kassan langar mig til að  lýsa aðeins og setja eithvað letur á hann, en hann fær að vera svona í smá tíma en mun svo líklega lýsast með hækkandi sól ;)
Í körfunni sem hangir þarna geymum við lauk og svo er lítil leirkrús fyrir hvítlauk í kassanum, ásamt dásamlegum saltstein sem keyptur var í Sarasoda, piparkvörn, olíu og kakó í krús (fyrir SwissMokka húsfreyjunnar)

Eldri sonurinn keypti sér tómata um daginn og tikynnti að tómatar ættu ekki að vera í iskáp...
ég reyf þá úr plastumbúðunum og skellti þeim í litla bastkörfu og þá er honum guðvelkomið að geyma sína tómata uppá borði mín vegna.






kveðja,




í vetrarfríi

January 23, 2012
Í síðustu viku deildi ég með ykkur alveg stórglæsilegu hóteli í svissnesku ölpunum, þar sem ég væri svo til í að eyða góðu vetrarfrí með ástinni minni.

En svo  rakst ég á þennann huggulega fjallabústað í Póllandi, á netinu í vikunni og fanst alveg tilvalið að deila honum sem innliti þessarar viku;

þessi er alveg ekta fjallakofi og minnir eiginlega dáldið á sögurnar um hana Heidi sem flutti til  afa sins... en líklega  er það nú bara geitin... 












Mér finst þessi bústaður alveg einstaklega hlylegur og kósý og margt við hann sem ég gæti hugsað mér að yfirfæra í dæmigerða íslenska sumarbústaði.
 Ég fann myndirnar hjá nicety.livejournal.com en þar eru innlit héðan og þaðan af mjög fjölbreyttum heimilum... síðan er að vísu á Rússnesku en þá kemur sér vel að hafa google translate, bara til að vita hvaðan heimilin eru;)



vonandi hafið þið það annars gott á þessum mánudegi og haldið bjartsýn af stað inní nýja viku.
með kveðju;



sætur sunnudagur

January 22, 2012
Góðann daginn.
Hvernig byrjaðir þú þennann fallega sunnudag?
Kanski á góðum morgunverði; með nýbökuðu brauði. sultu. úrvali af ostum, ilmandi te og safa?

















Auto Post Signature

Auto Post  Signature