....með nýju diskunum úti á palli
Þið fenguð að sjá diskana sem bættust í borðstofuskápinn um daginn og um leið lofaði ég að dekka upp borð með þeim og deila með ykkur.
Í blíðunni um síðustu helgi var alveg tilvalið að borða úti svo ég notaði tækifærið og dekkaði upp ofureinfalt veisluborð í blíðunni
Ég alveg elska þessa diska, sjáiði lagið á þeim....og stærðin!!!
það þarf sko að passa skammtana á þessum diskum, eins gott að byrja á að setja salat á helminginn af disknum ;)
Eins og þið sjáið er þetta bara ósköp einfalt, enda er oft minna bara betra. ekki satt?
Í þetta sinn voru gerfiblóm sem ég átti til bara notuð, en auðvitað er mun fallegra að nota alvöru blóm.. og ef þið hafið ekki tök á að tína blóm úti, þá er sniðugt að kaupa blandaðann vönd og dreifa blómunum í flöskur og krukkur... það er eithvað svo voðalega sumarlegt
eigið góða helgi
"Like" á servíettuna utan um flöskuna- svo einfalt og gerir svo mikið!
ReplyDelete