Ég er farin í frí..
Mér bauðst mjög óvænt að skella mér ein til Noregs að hitta fjsk og vini,
þannig að þegar þið sjáið þetta þá verð ég væntanlega komin á áfangastað að athuga hvort fréttir um ofurhita og endalaust logn hjá frændum vor og vinum séu sögusagnir eða hvað.
En ég skellti inn tveimur myndum fyrirframm fyrir ykkur til að skoða meðan ég er í burtu.
þarna nýtur sólin sín seinni partinn og ég hef tekið borðið og stólana út úr kofanum í bili svo það sé hægt að tilla sér þarna úti ..
en þetta er fyrir framan kofann (sáuð hinum megin við kofan hér)
svo þarf auðvitað að punta smá með bleiku og sætu. Þó að lítið gagn sé svosem af kertum og luktum í allri kvöldsólinni..
en fallegt og kósý er það.
Svo geri ég nú ráð fyrir að taka einhverjar fallegar myndir hér úti til að deila með ykkur og hver veit nema ég komi með eithvað sniðugt í farangrinum fyrir heimilið.
Er farin að knúsa unglingana mína pínu meir, kem heim aftur á sunnudaginn :)
Hafðu það súpergott í Norge! Þú mátt líka knúsa alla frá mér;)
ReplyDeleteKv.Hjördís
Takk Hjördís og takk so meget fyrir að gefa mér tækifæri til að skreppa svona út, það var alveg ómetanlegt :*
Delete