Ég bakaði piparkökur fyrir jól, en lét hinsvegar ekki verða af því að skreyta þær fyrr en núna fyrir áramót og að sjálfsögðu voru frostrósir fyrir valinu ásamt stjörnum og einstaka jólatrjám.
Skreytt með hvítum royal icing og glimmeri
Piparkökurnar fóru svo með til foreldra minna um ármótin , þar sem stórfjölskyldan fagnaði saman og skálaði fyrir nýju ári
Æðislegar piparkökur! Hún KJ missti sig einmitt þegar hún sá mynd af skreyttum piparkökum sem voru að mig minnir á síðunni þinni;) Gleðilegt nýtt ár elsku Stínu.
ReplyDeleteKv.Hjördís
jú passar ég lá yfir myndum af svona kökum og setti nokkrar vel valdar hér inn um daginn.
ReplyDeleteGleðilegt nýtt ár og hlakka til að hitta ykkur á nýja árinu.
Knús á ykkur <3
kv stína
Geggjaðar kökur, ég myndi ekki tíma að borða þær - myndi bara hamstra þær í vasann og skreyta með þeim heima hjá mér ;)
ReplyDeleteGleðilegt árið og takk fyrir skemmtilega bloggvináttu!
*knús