Ég datt niður á þá snilldar hugmynd á pinterest, að nota bolla sem ég nota ekki til að skipuleggja skartið mitt.
Svo bollarnir sem þið sáuð í glerskápnum í eldhúsinu eru komnir ofan í skúffu í svefnherberginu.
Bollana hef ég lítið getað notað þar sem þeir eru of litlir miðað við skammtinn sem kaffivelin gefur, en eru ægilega sætir og fínir og alveg fullkonmir í þetta verkefni.
Ofan á kommóðunni eru svo tveir kertastjakar í fullri vinnu en þegar annar brotnaði fengu þeir þetta nýja hlutverk, og laufblöðin eru eins og gerð til að hengja eirnalokkana á og brotni leggurinn tekur við hringum.
Annað var svo í kössum og taupokum ofaní skúffuni og í algjörri óreyðu, enda fer mér ekki vel að halda reglu á hlutunum.... nema ég geti gert það pínu fallega og myndrænt, þá er svo mikið skemmtilegra að halda röð og reglu :)
Mjög ofarlega á verkefnalistanum mínum er svo að taka í gegn svefnherbergið og þessir undurfallegu snagar og höldur bíða þolinmóð í undirskál á kommóðinni. En þeim er ætlað mikið og göfugt hlutverk í nýju og bættu svefnherbergi..... fljótlega.
Er ekki gaman þegar fallegir hlutir fá alveg flunkunýtt hlutverk á heimilinu? Eithvað sem þeim var aldrei ætlað að gera, en gera það svo undurvel :)
Kveðja;
Þetta er svo fallegt að ég held að núna þurfir þú að hafa skúffuna alltaf opna :-)
ReplyDeleteKristín V
Snilldarhugmynd hjá þér Stína og svo er þetta svo ljómandi fallegt að ég segi bara eins og Kristín skúffan verður að vera opin ekki spurning
ReplyDeletekveðja Adda
Gott hjá þér og flottar höldur.
ReplyDeleteYndislega skemmtileg hugmynd og fallegt! Skúffan verður að vera opin! ;-)
ReplyDeleteBara sætt :)
ReplyDeleteHöldurnar eru líka alveg að gera sig og sýna að spennandi meik-óver er í vændum!
takk stelpur.
ReplyDeleteÉg stand mig nú alveg að því að opna skúffuna og kíkja ofaní reglulega ;)
Ægilega ánægð
Takk fyrir commentin