Já loks gafst mér tækifæri til að sýna ykkur sleðann góða sem ég fékk hjá tengdó fyrr í vetur,
mitt fyrsta verk þegar ég kom heim úr vinnu í dag var að skella sleðanum út á tröppur, með skautum og öðru tilheyrandi skrauti og svo stóð ég bara og dáðist að honum með myndavelina.
það þarf reyndar örlítið að lagfæra hann, handfangið hafði brotnað í eina tíð en handlagni faðirinn (afi eiginmanns mins) skellti kústskafti þar inn í staðinn svo börnin gætu haldið áfram að leika sér í snjónum (tengdamamma mín og systkyni hennar)
Ég hef verið að skoða myndir af svona sleðum og þannig séð hvernig handfang ég vil setja þarna í staðinn, og að verður gaman að leifa honum að njóta sín þannig næsta vetur.
Svo notaði ég sjensinn og tók nokkrar myndir á tröppunum í leiðinni, við höfum lært það hér fyrir sunnann að nota daginn sem snjóar, því það er ekkert víst að mynda-momentið sé enn næsta dag.
Annars langaði mig nú mest til að vera bara heima í morgun og hafa það kósy inni meðan stormur og blindbylur geysaði úti fyrir, en fór í vinnu enda ekki umferðarteppur og vesen hérna suður með sjó.
En kósköp var nú gott að komast heim og kíkja aðeins í nyja blaðið sem ég var að næla mér í.
og sjáiði undurfallegu gömlu súpertarinuna mína sem ég keypti í Frú fiðrildi um helgina,
hún hefur sagt skilið við lokið sitt og um leið lokið sínu hlutverki fyrir súpur...
svo nú er hún orðin súpertarína
Hafið það sem allra best í dag og farið varlega þarna úti.
kveðja Stína
Æðisleg súðertarinan þín og gamli sleðinn hennar mömmu tekur sig vel út á tröppunum ykkar;)
ReplyDeleteKv.Hjördís
Æðislega flottar myndir.
ReplyDeleteBestu kveðjur, Hugborg
Sleðinn er ÆÐISLEGUR og vetrarmyndirnar svo fallegar!
ReplyDeleteFallegar myndir hjá þér og sleðinn er yndislegur :)
ReplyDeleteSvo fallegar myndir. Mér finnst sleðinni æði og einmitt ekki síst út af kústsköftunum, þetta er sko sleði með sögu, ofurflottur!
ReplyDeleteOg gaman að sjá súperterínuna komna með sitt hlutverk, þú ert ekki lengi að koma hlutunum í verk Stína mín, glæsilegt hjá þér og svo kósý þarna inni hjá þér eins og alltaf :)
Með kærri norðanáhlaupskveðju!
Kikka
Mjög flott allt saman..
ReplyDeletekv Ása