ég elska kerti og kertaglös,
það er svo notalegt að sitja í rökkrinu og láta kertaljósið varpa notalegri birtu um allt heimilið.
og þessa rigningardagana er meira að segja orðið hálf rökkvað þegar ég kem heim kl 3 á daginn,
svo að kósý myndir er nú það sem verður fyrir valinu hér á litla kósý blogginu mínu.
Að setjast við tölvuna með tebolla og kertaljós er dálítið í uppáhaldi hjá mér eftir vinnu.
Svo kósý og notalegt
Eitt verð ég þó að viðurkenna, og það er að ég nota ekki sykur í teið mitt. þessar sykurstangir lúkka bara svo skrambi vel svona á bakkanum, og eru til ef einhver skildi vilja sykur eða hunang í drykkinn sinn.
og hunangið nota ég ekki heldur en þessi trekrukka er gömul hunganskrukka sem mamma átti og ég fylli bara á hana og skal bjóða ykkur hunang í teið ef þið þiggið hjá mér bolla einhverntímann.
Mér finst hinsvegar liktin af hunanginu alveg einstaklega góð og gat varla hætt að likta upp úr krukkunni þegar ég tók þessar myndir
mmmmm svo sæt og góð.
já listin að njóta er dásamleg og gefandi.
takk fyrir að kikja hér inn
Kósíleg stemmning í þessum myndum :)
ReplyDeleteEigðu góðan dag
Margrét