Eins og ég sagði frá á fb síðunni þá rakst ég á pottablóm í Draumalandi sem ég hef ekki séð hérna áður, en var hinsvegar ofurvinsælt á blogglandi í fyrrahaust, amk hjá Norsku bloggurunum.
Blómið heitir corokia og er í raun runni, og mjög sérstakt í útliti og algjört æði sem haustskreyting finst mér.
ég gerði alveg ráð fyrir því að það myndi nú ekki falla í kramið hjá öllum og eiginmaðurinn horfði á mig vorkunnaraugum og sagði mér að nýja blómið mitt væri dautt..
en viðurkenndi svo að honum findist það bara voða töff en..
"eiga eftir að koma meiri laufblöð á það?" bætti hann svo við ofurvarlega haha
Kósý stemning með haustplöntu og kertaljós, gerist það betra?
hér er svo linkur á áskorun hjá NIB frá því í fyrrahaust þar sem þemað var Coronkia í öllu sínu veldi. Þar getið þið séð fleiri svona eintök í ymsum útfærslum ef þið hafið áhugaá að sjá meira.
Yndislega fallegt! Plantan er sjukleg...
ReplyDeleteGordjöss, hvar fékkstu þessa fallegu kertalukt?
ReplyDeletekertaluktina fékk ég í jólagjöf fyrir amk tveimur árum síðan. En hún var keypt í cabo í keflavík... og mögulega gæti hún verið til þar þessi jólin líka
Delete