Þegar litla fjölskylda sonar mins flutti í sina eigin íbúð fyrr á árinu, fékk litla ömmugullið mitt, sem þá var að verða 3ja mánaða, sitt eigið herbergi og amman bað um að fá að sjá um að gera herbergið alveg frá a til ö...
svo litla daman svaf í vöggunni í nokkrar vikur í biðbót svo amman gæti dundað sér við herbergið.
Farið var að sitja um hinar ýmsu gersemar í geymslum og nytjamörkuðum og barnaherbergi urðu aðal pælingin á blogginu og pinterest um tíma.
Hér heima var svo gamla herbergi litlu fjölskyldunnar gert að vinnuherbergi, þar sem var pússað og málað, klipt og límt, spreyjað og nelglt og skrúfað, þess á milli var svo heklað og saumað.
og alltaf bætist eithvað við og enn eru hlutir í vinnslu.
En litla daman er löngu farin að sofa í rúminu sínu og líður bara vel í nýja herberginu sínu.
Herbergið er stórt og bjart, í gruninn mjög hvítt og með mildum pastellitum.með eikarlituðum skáp, hurð og gólfi og alveg mögnuðu útsýni og fallegum kvöldhimni
og hér sést svo herbergið frá einu sjónarhorni,
hér er sv aðeins annað sjónarhorn, rúmið hennar og fatahengið
Við dyrnar er skiptiborðið með öllu tilheirandi, þar sem þægilegt er að nálgast allt sem þarf til að sinna barninu og sækja hluti.
Hér er "leiksvæðið" kommóðan geymir leikföngin, bækurnar eru í góðri hæð fyrir lítil krílli, ruggustóll og borð með fallega kanínulampanum og auðvitað mottan sem mamman heklaði sjálf fyrir ungann sinn.
myndaveggurinn og fánaborðinn komið á sinn stað, myndirnar eru klippimyndir kliptar út úr sama pappírnum og fánarnir, límdar saman og útlínur og bakgrunnur tússað með svörtu.
kommóðuna og ruggustólinn vorum við búin að skoða vel í vikunni, bæði fyrir og eftir myndir, bókahillurnar þekkjum við úr Ikea, ekkert voðalega frumleg þar, en þær eru bara svo einstaklega henntugar (og gamla diskarékka fann ég ekki, en það hefði verið fyrsti kostur fyrir bækurnar) ;)
Á kommóðunni er grænn rammi úr tiger, með aðalversinu úr laginu Is´nt she lovely með Steve Wonder en það lag var sungið í skírninni hennar.
Bara svo bjart og fallegt.
Borðið var kollur sem pabbinn smíðaði í námi og hefur beðið í geymslunni hjá mér eftir akkurat þessu hlutverki og í horninu er trékassi sem geymir öll mjúkdýrin hennar Írisar Lind
Rúmið er einfaldlega bara hvítt og með blúndu sem passar við gardínurnar.
Einfalt og fallegt.
Hér er svo fatahengið sem er grein úr birkiskóginum hans pabba í Skorradalnum, en þarna verður aldeilis gott að hengja alla fallegur kjólana hennar.
Kannturinn í rúminu og rúmfötin eru ofurfalleg frá Lin design, hvít með hvítum og bleikum fiðrildum, sem við fundum á lagersölu þeirra eftir áramót.
Góð kaup gerð þar :)
Mæðraplattarnir eru algjörlega gordjös finst mér ,með þeim er gamall vegglampi sem amma mín og afi áttu og ég bara spreyjaði og sterkur liturinn er kærkomin innanum alla pastellitina. svo herbergið sé ekki eins og ís réttur.
fyrir /eftir póstur um kommóðuna og ruggustólinn er hér
Svo vorum við búin að skoða hekluðu amigurumi fígururnar sem eru meðal annars í A-hillunni og á fatahenginu
sjáið þann póst hér.
Svo fáið þið að sjálfsögðu að fylgjast með þegar fleyra bætist við.
En hvað segið þið, er þetta ekki bara ósköp sætt?
Dáldið hvítt ég veit það, en ég efa ekki að herbergið á eftir að fyllast af alls kyns litum leikföngum með tímanum svo það er eins gott að blogga um það þar til.
En nóg i bili,
Eigið notalega stundir
kær kveðja
Amma Sína
Þetta er svo ofsalega fallegt hjá þér :)
ReplyDeleteKveðja, Vaka.
Þakka þér fyrir það Vaka,
DeleteKær kveðja og takk fyrir innlitið
Stína
Herbergið er æðislegt.
ReplyDeleteKveðja Kristín
Takk innilega fyrir það Kristín
DeleteVá, ekkert smá fallegt :) Heppin litla prinsessan að eiga svona flotta og duglega ömmu ;-)
ReplyDeletekv
Kristín Vald
;) takk Kristín mín, ömmunni finst hún nú bara fremur heppin að fá svona skemmtilegt verkefni... og fékk að ráða öllu haha
DeleteOrðlaus! Ótrúlega fallegt!
ReplyDeleteKv,
Heiða María
Takk innilega Heiða Maria
DeleteFalleg orð þrátt fyrir orðleysið ;)
Fallegt og gaman að sjá þetta hjá þér. Yndislegt
ReplyDeleteTakk innilega :)
DeleteIt is so lovely. I love the rabbit lamp.
ReplyDeleteThank you
DeleteThe Rabbit lamp is so beautiful. and the light is so soft and lovely.
Kommóðan og fatasláin eru uppáhalds í þessu fallega herbergi!
ReplyDeleteGaman að heyra það. Mér finst einmitt kommóðan og litla hillan fyrir ofan pínu uppá halds ;)
DeleteHvaðan er borðinn (veifurnar)? :)
ReplyDeleteFána borðinn og klippimyndirnar í römmunum er gert úr pappír sem ég keypti í Föndru.
DeleteWhat a privilege it must have been to decorate your grandchild's room - it's beautiful!
ReplyDeleteohh You just said it all.
DeleteThat´s so exactly how it feels :)
So pretty! Love the birch wood branch, so clever and charming! Thanks so much for sharing at AMAZE ME MONDAY...
ReplyDeleteBlessings,
Cindy
Love this so much! I am featuring you at Sundays at Home this week!
ReplyDelete