Ég gerði þennan ægilega eldhúslega jólakrans úr gömlu kökuformi, eplum og kanil og mosa. Setti svo kerti í miðjuna og er bara komin með þetta fína borðskraut..... epli og kanill, getur það klikkað?
óska ykkur góðrar helgar og vonandi eigið þið notalegt augnablik til að njóta aðventunnar.
Ég ákvað að taka mér hlé frá jólastússi og þrifum og sit í huggulegheitum við eldhúsboðrið með swissmokka og heimabakaðar negulkökur.
óska ykkur góðrar helgar og vonandi eigið þið notalegt augnablik til að njóta aðventunnar.
Þetta er frábærlega sniðugt hjá þér og kemur mjög flott út.
ReplyDeletekveðja Adda
Þetta líst mér vel á. (Og heimabakaðar myndir :))
ReplyDeletejólalegra getur það varla verið ;=)
ReplyDelete