Eins og ég hef áður sýnt ykkur, þá er borðstofan hjá mér að mestu skreytt með hvítu og silvur og þá eru það frostrósir og snjór sem er í aðalhlutverki, með smá könglum og fleyru til að gefa þessu svona vetrarfíling.
Á borðstofuskápnum...
...er þriggjahæða kökubakki skreyttur með snjóboltum (sem eru pappírsdúskar búnir til úr serviettum) og svo eru könglar og gerfisnjór á tertudiski notað til að gera svona vetrarsenu í anda snjókúlana góðu. þá bleytti ég glerhjálminn og stráði snjó yfir og lét þorna, eins og Dossa hjá Skreytum hús benti svo snilldarlega á
kökudiskar, karöflur og vínkassi er notað til að skreyta borðstofuskápinn... á það ekki bara ægilega vel við?
Og svo er það borðstofuglugginn:
ég fékk mer hyasintulauk í fyrsta skipti og setti hann í silfurskál og fyllti með gerfisnjó...
vonum svo bara að hann nái að blómstra hvítu fallegu blómi fyrir jól.
og svo held ég áfram að föndra úr pappír.. gerði svona keylur úr pappírsblúndum og skreytti með glansmyndum... með vetrarmynd að sjálfsögðu
og svo fór að sjóa svo ég smellti af annari mynd:
Ég ætla að fara að skreyta jólatréð, er búin að setja það upp á sínn stað, þar sem stofan og borðstofan liggja saman og nú mun borðstofan fá smá gylltan sjarma ;)
Þakka ykkur innlitið og hafið það sem allra best á þessum fallega degi,
kveðja;
Dásamlega fallegt hjá þér og rómantískt allt saman!
ReplyDelete