Ég ákvað að draga framm körfuna með lopa afgöngunum mínum í gær
og byrja að hekla hlítt afgangateppi úr léttlopanum.
Það ætti líklega ekkert að koma á óvart að garnið er næstum allt í jarðlitum
og tónar nokkuð vel saman.
og í morgun var rosalega notalegt að sitja smá stund og hekla áður en ég kom mér í gang að gera eithvað af viti,
vandamálið var hinsvegar að slíta sig frá heklinu
Svo Þegar ég stóð upp til að ná mér í nýtt kaffi og búin að taka nokkrar myndir.
kom í ljós að sætið mitt var upptekið
Prinsinn á heimilinu búinn að koma sér vel fyrir
og kúrir með nýja verðandi teppið mitt.
Ég sýni svo myndir af teppinu þegar lengra er komið,
eins og er, er ég bara rétt að ákveða litauppröðunina og læra á mynstrið.
En Loga mínum líst greinilega vel á það.
er líka að byrja á teppi úr afgöngum og sýnist það vera sama munstur og þú ert með, þetta er einmitt svo notalegt að byrja daginn á þessu :)
ReplyDeleteGangi þér vel með teppið og hlakka til að sjá myndir ;)
þakka þér fyrir fallegar myndir !!! elska kveðjur frá Angie frá Þýskalandi
ReplyDelete