Næsta innlit okkar í dag er einnig með blaðamönnum tímaritsins Lantliv. Í þetta sinn eru það Anna Hagstrom & Jonathan Tunved sem eiga íbúð í Hammarby Lake City í Stockholmi og sveitabæ í Dalama í Sviþjóð.
Þau bjóða okkur með í heimsókn í sveitasæluna sína undurfallegu.
Source: tidningenlantliv.se
By Susanne Gillerås
Photo Magdalena Björnsdotter
Þetta var þriðja og síðasta innlitið í dag
og enn bíða amk þrjú innlit sem ég hef tínt til undanfarið
og þar sem mánudagar eru heimsóknardagar hér hjá okkur þá kikjum við bara á þau næsta mánudag.
En þangað til skoðum við ýmislegt annað fallegt,
við ætlum að kikja í kofann í vikunni og sjá hvernig húsfreyjunni (sem er ég) gengur að koma honum í sitt fallegasta ástand fyrir sumarið,
ég veit um flottann sljósmyndara sem mig langar til að kynna ykkur fyrir og svo eiga einhverjar sumarmyndir alveg örugglega eftir að rata á fjörur mínar áður en vikan er á enda.
Takk fyrir að þvælast með mér í heimsóknir á þessum frábæra mánudegi og megi vikan okkar vera sem ánægjulegust og falleg.
kær kveðja
Stína Sæm
Dásamlegt heimili, svo mikil friðsæld í því einhvernveginn :) Gaman að kíkja í innlit með þér!
ReplyDelete