Læt mig dreyma um hvítt, vintage eldhús,
með opnum hillum og diskarekkum fyrir fallegann borðbúnað.
og að sjálfsögðu snögum um allt fyrir allar eldhúsgersemarnar, þessar gömlu slitnu og flögnuðu sem gefa eldhúsinu svo fallgt rustic lúkk.
Bloggsíðurnar Vita verandan, Lilla Blanka, Julias vita drömmar og Vibeke design eru allar með svona drauma eldhús... hvít, vintage og bara algjör draumur fyrir svona konu eins og mig.
Hannes dagbok |
Julias vita drömmar |
Hannes dagbok |
hidlesundet |
G-style |
Vita verandan |
Vita verandan |
Hannes dagbok |
Lilla Blanka |
Lilla Blanka |
Petite Michelle Louise. |
vibekedesign |
abeachcottage.com |
Beatehemsborg |
Þegar ég skoða svona eldhús, langar mig mest til að mála allt eldhúsið mitt hvítt,
rifa niður efriskápana og setja hillur, diskarekka og snaga um allt.....
en.....
Eldhússkáparnir mínir eru grænir og með mikið munstruðum flísum sem gefa eldhúsinu karakter sem ég er ekki á leiðinni að fórna, en það þarf nú að flikka smá uppá það.
Svo er ég ekki að sjá það ganga upp á mínu heimili að flagga öllu því sem er í efriskápunum...
sé ekki að allt eldhúsdóttið mitt yrði mjög smart í opnum hillum.
neeei ekki alveg.
En ég gæti alveg hugsað mér að eiga smá veggpláss í viðbót til að setja nokkrar hillur og svo sem eins og einn diskarekka.
En látum oss dreyma :)
Þið getið séð enn fleiri eldhúsmyndir hér á pinterest
Hafið það sem allra best,
kveðja Stína
Svo er nú eldhúsið hennar Gúu í Hvítur Lakkrís, það er æði eins og allt hennar heimili :)
ReplyDeleteTakk fyrir skemmtilegt blogg.
Kv Sigga
ójá allt sem hún setur á sína síða er svo algjörlega svona. Allt svo fallegt hjá henni og algjör draumur <3
Deletekveðja Stína
Alveg er ég sammála þér - finnst þetta hrikalega flott, en svo þegar ég fer að hugsa um rykið og fituna sem sest á allt í svona opnum hillum þá.....ja....líður þessi löngun í eitt slíkt alveg hjá :-) Nema auðvitað að maður splæsi í húshjálp til að halda þessu svona fallegu áfram....Takk annars fyrir skemmtilegt blogg, Lísa á Akureyri
ReplyDeleteÆjá það er nú málið, en í draumum fellur sem betur fer ekkert ryk og alls engin fita fylgir eldamennskunni.
DeleteSvona eldhús myndi amk aldrei hennta mér í raun, svo við látum okkur bara dreyma og njótum þess ;)
ég deili algjörlega með þér þessari löngun í hvítt eldhús dásamlegar myndir
ReplyDeletekveðja Adda