Ég hef nú ekki gert mikið af því að byrta hérna myndir af húsinu mínu að utan, þó ég búi í fallegu og veluppgerðu gömlu húsi í gamla bænum í Keflavík.
Ástæðan er nú einfaldlega sú að það var kominn tími á uppliftingu, þrátt fyrir smá viðhald á sumrin hefur mikið rið sprottið framm og hvítmálaðir fallegir skrautlistar orðið riðrauðir og flekkóttir og járnið blettótt, rennurnar voru riðgaðar í sundur og rauð og græn málning á viðarverkinu orðin upplituð og við héldum td að þakið hefði verið málað brúnnt en rauð þakmálningin var bara orðin svona upplituð.
Svo það var byrjað á frammhliðinni í vor, svo ég hafði pallin bakvið hús til að leita skjóls fyrir háþrystiþvotti og málningarslettum. En það var ekki spennandi útlitið á fallega húsinu mínu að framan;
Nú er frammhliðin búin og ég hef verið síðustu vikur að dúlla við að mála allt tréverkið við útitröppurnar á meðan pallurinn var stílfærður af eiginmanninum sem kallar sinn stíl construction style... og er komin í harða samkepni við stílfæringar húsfreyjunnar utanhús.
En það er allt í lagi þvi ég bara get ekki hætt að dáðst að húsinu mínu að framan,
þar sem það var verst.....
en er núna orðin svona undurfallegt og fínt :)
og þó að enn sé mikið verk eftir þá lagði ég frá mér pensilinn fyrir helgina,
fór á garðaútsölu og puntaði smá og skreyti hjá mér tröpurnar...
Svo er að sjálfsögðu kveikt á luktum og útikertum þegar sólin hættir að skína á kvöldin.
Það er svo svakalega huggulegt og kósý.
En nú er eins gott að drífa sig í vinnugallann, ekki er hægt að láta kallgreyið gera allt einn á meðan ég bara dúlla mér með blóm og kerti...
lágmark að vera amk í málningargallanum þegar hann kemur heim úr vinnu ekki satt?
Hlakka til að sýna ykkur meira þegar fleyri hliðar klárast.
Takk innilega fyrir innlitið og sérstaklega öll skilaboðin sem ég er að fá
þið eruð frábær
húsið þitt er alveg svakalega fallegt, það er svo gaman þegar fólk heldur þeim vel við.
ReplyDeletevið eigum enn eftir að klára viðarverkið í kringum glugga og fyrir neðan þak hjá okkur... þetta kemur hægt og bítandi ekki satt ;)
takk Birna. það er mikið verk að gera svoan hús upp og gaman að fylgjast með hlutunum gerast hjá ykkur. Það voru ekki við sem gerðum okkar hús upp,en hef alltaf dáðst mikið að þessu húsi. Svo það er eins gott að standa sig vel við að halda því við ;)
DeleteÞað ersvo æðislegt að sjá falleg gömul hús sem vel er hugsað um.
Svakalega áttu fallegt hús :)
ReplyDeleteOfbodslega fallegt husid hja ther!
ReplyDeleteHrikalega áttu fallegt hús, og ekki verra þegar nostrað er svona við það! Augnayndi !
ReplyDeleteÞetta er svo fallegt hús, hlakka til að sjá meira.
ReplyDeleteKveðja úr Fnjóskadalnum
Yndislega fallegt húsið þitt og svo fallega puntað í kring. Þetta er mikið vinna að halda svona gömlu húsi við, það veit ég. Hvar komstu á garðaútsölu? Væri alveg til í að komast í svoleiðis aðeins. Kveðja úr Kóp. Svala
ReplyDeleteþakka þér fyrir Svala og takk fyrir að kikja hér inn, en líklega orðaði ég þetta með garðaútsöluna frekar illa, það var nú bara útsala á garðplöntum í blómaval... kom að vísu ekki heim með mikið úr þeirri ferð en nóg til að bæta smá á tröppurnar.
Deletekv Stína
Húsið ykkar er hrein dásemd! Svo mikið er víst :)
ReplyDeleteHúsið ykkar er stórglæsilegt! Litavalið er líka sérlega vel heppnað finnst mér.
ReplyDeleteVááá hvað húsði er orðið fallegt hjá þér Stína mín glæsilegt hjá ykkur
ReplyDeletekveðja Adda